SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?

Leaving Las Vegas

Bandarísk 1995

Leikstjóri: Mike Figgis

Leikarar: Nicolas Cage , Elisabeth Shue ofl

28. nóvember

Von, húsi SÁÁ við Efstaleiti 7

Sýnd kl. 21:00

 

Besta mynd sem gerð hefur verið um mann að drekka sig í hel. Þeir sem kannast við að hafa staðið frammi fyrir vali um að sleppa öllum böndum og láta sig falla ofan í hyldýpi neyslunnar munu þekkja stöðu og val aðalpersónunnar. Sagan lýsir mögnuðum átökum á milli fíknar og sjálfshatur annars vegar og ástar og lífslöngunar hins vegar.

 

Sagan er byggð á bók eftir John O'Brien og byggir á hans eigin reynslu hans af alkóhólisma. O'Brien skaut sig tveimur vikum eftir að hann frétti af því að til stóð að gera kvikmynd upp úr bókinni. Það má því líta á bókina (og myndina) sem einskonar sjálfsmorðsbréf langtleidds alkóhólista. Hann tileinkaði bókina eiginkonu sinni, Lisu Kirkwood, en hin aðalpersóna myndarinnar er byggð á henni.

 

Nicolas Cage fékk bæði Óskars- og Golden Globe-verðlaun fyrir leik sinn í myndinni. Hann leikur svo vel í þessari mynd að það má fyrirgefa honum mikið af því drasli sem hann hefur leikið í síðan. Elisabeth Shue (sem sést alltof lítið) á líka frábæran leik.

 

Leikstjóri myndarinnar er Mike Figgis. Hann hefur hvorki fyrr né síðar gert betri mynd.

 

Til baka

 

 

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.