SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?

Lenny

Bandarísk 1975

Leikstjóri: Bob Fosse

Leikarar: Dustin Hoffman, Valerie Perrine, Jan Miner o.fl.

7. nóvember í Von

Sýnd kl. 21:00

 

Lenny Bruce var drykkfelldur uppistandari og kynnir á nektarbúllum sem varð landskunnur þegar hann hann fór að nota venjulegt götumál í uppistandi sínu og hætti að sniðganga klúryrði og önnur orð sem voru bannhelg. Kærum ringdi yfir Lenny, sýningar hans voru stöðvaðar, hann handtekinn og dæmdur og meinað að skemmta í svo til öllum fylkjum Bandaríkjanna. Lenny var af kynslóð bítnikka en varð mikil hetja meðal hippakynslóðarinnar — ekki síst eftir að hann dó af of stórum skammti eiturlyfja 1966, fertugur að aldri.

 

Leikstjórinn Bob Fosse gerði myndina um Lenny eftir að hafa slegið í gegn með sinni fyrstu mynd, Cabaret. Fyrir hann fékk Fosse Óskarinn fyrir leikstjórn (Francis Ford Coppola var einnig tilnefndur fyrir fyrsta Guðföðurinn). Fosse var einnig tilnefndur fyrir Lenny, en fékk ekki. Myndin er byggð á leikriti eftir Julian Barry, sem þekkti vel til Lenny Bruce. Myndin sýnir ekki aðeins hvernig stjórnvöld reyndu að halda aftur að tjáningarfrelsi Lenny og beittu hann órétti heldur ekki síður hvernig ofsóknarkennd hans vex með aukinni drykkju og vímuefnanotkun.

 

Bob Fosse þekkti sjálfur vel til eitrulyfjavandans. Hann átti frábæran feril, bæði sem danshöfundur og –stjórnandi og eins sem kvikmyndaleikstjóri. Hann var lengi háður örvandi efnum. Í sjálfævisögulegri mynd, All That Jazz, kemur vel fram hvernig fíknin brýtur pesónuna niður. Fosse hefur því að hluta til byggt á eigin reynslu þegar hann lýsir hrörnun persónuleika Lenny.

 

Það er Dustin Hoffman sem leikur Lenny. Og gerir það frábærlega. Hann var tilnefndur til Óskarsins fyrir þetta hlutverk en fékk ekki — fremur en fyrir mörg hlutverk sem hann átti skilið að hreppa verðlaunin fyrir (The Graduate, Midnight Cowboy).

 

Valerie Perrine leikur Honey Bruce, fatafellu sem Lenny giftist. Hot Honey Harlow var sviðsnafn Harriett Jolliff, sem var smáþjófur og strippari. Hún giftist Lenny 1951 og skildi við hann sex árum síðar eftir að dóttir þeirra kom í heiminn. Þegar Lenny dó barðist Honey fyrir því að hann yrði náðaður í New York vegna dóma fyrir klúryrði og óspektir. Goerge Pataki ríkisstjóri gerði það að lokum.

 

Valerie Perrine lék í fjölda mynd, einkum á fyrrihluta ferilsins, og þá oft gálulegar konur. Hún var til dæmis Eve Teschmacher, fylgikona Lex Luthor í fyrstu Súperman-myndinni, B-mynda smástirnið Montana Wildhack í Slaugtherhouse-Five og Zeftel í Töframanninum frá Lublin

 

Til baka

 

 

 

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.