Bandarísk frá árinu 2000
Leikstjóri: Darren Aronofsky
Leikarar: Ellen Burstyn, Jared Leto og Jennifer Connelly ofl.
Sýnd 21. nóv.
kl. 21:00
Meistaraverk sem Darren Aronofsky (Pi, The Wrestler, Black Swan) byggir á sögu heróínistans Hubert Selby Jr. Að margra mati ein besta mynd sem gerð hefur verið um dópista og dópkúltur.
Ellen Burstyn, Jared Leto og Jennifer Connelly skila frábærum leik.
Það þarf ekki að taka fram að dópneysla persónanna endar ekki vel. Sagan er að hluta til byggð á eigin reynslu Hubert Selby Jr., en hann náði sér hins vegar út úr neyslunni. Þetta er önnur myndin sem gerð hefur verið eftir dópsögum hans. Hin er Last Exit to Brooklyn sem Uli Edel leikstýrði (sá sami og gerði mynd um Dýragarðsbörnin) og verður örugglega sýnd síðar í mánudagsbíói SÁÁ.
Til baka