SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?

Retro Stefson + Nolo

Tónleikaröðin Kaffi, kökur & rokk & ról verður haldinn í sjötta sinn þriðjudaginn 25. október næstkomandi. Í þetta sinnið eru það Retro Stefson, heitasta tónleikaband landsins um þessar mundir (eitthvað sem hún innsiglaði á nýafstaðinni Airwaveshátíð) og best geymda leyndarmál íslenskrar tónlistar í dag, snilldardúettinn Nolo. Hnallþórurokk af dýrari gerðinni!!!

 

 

 

Með pönkaðri, espressoleginni marenskveðju

 

Arnar

...og ég er í síma 8227170 og á Facebook

 

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.