Tónleikaröðin Kaffi, kökur & rokk & ról verður haldinn í sjöunda sinn þriðjudaginn 1. nóvember næstkomandi. Síðast fyllti Retro Stefson Edrúhöllina, Efstaleiti 7 og var stemningin með miklum ólíkindum.
Í þetta sinnið spilar hin mjög svo kraftmikla Reykjavík! en leitun er að sveittara tónleikabandi. Hún var einnig að gefa út nýja plötu fyrir mjög svo skömmu síðan og er hún þegar farin að raka inn lofi.
Með Reykjavík! leikur Hljómsveitin Ég og nú vitna ég (Arnar) í sjálfan mig (svo ég þurfi ekki að vera endurhugsa þetta): "...þeir fáu sem hlýtt hafa á tónlist hans og sótt tónleika tilbiðja hann sem snilling (ég þar með talinn) á meðan restin af heiminum missir því miður af."
Með pönkaðri, expressoleginni marenskveðju
Arnar...
...og ég er í síma 8227170 og á facebook