SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?

Snorri Helga + Hermigervill

Tónleikaröðin Kaffi, kökur & rokk & ról heldur áfram þriðjudaginn 18. október næstkomandi. Sóley og Samaris léku á síðustu tónleikum og fór sú fyrrnefnda á algerum kostum, heyra mátti saumnál detta þegar hún töfraði salinn upp úr skónum. Nú koma Snorri Helga og Hermigervill fram.

 

Hús opnar 20.00.

Tónleikar hefjast 20.30.

Tónleikum lýkur fyrir 22.00.

500 kr. inn.

Kaffi og kökur í massavís fyrir tónleikahungraða sem -þyrsta!

 

Nánari upplýsingar veitir Arnar Eggert í síma 822-7170

http://www.facebook.com/pages/Kaffi-k%C3%B6kur-rokk-r%C3%B3l/110085789094116

 

--Hermigervill

Hermigervill hitar upp en galgopalegar útsetningar hans á kunnum íslenskum lögum hafa runnið vel ofan í landann. Önnur plata hans með slíku efni, ...leikur fleiri íslenzk lög, kom út fyrir stuttu.

"Ég er þannig gerður að allt sem er nýtt er glatað á meðan allt sem er gamalt er frábært."

-Hermigervill í spjalli við Fréttablaðið

 

--Snorri

Snorri Helgason endurskapaði sig sem ljúfsáran nútímatrúbadúr eftir ævintýri sín með Sprengjuhöllinni og síðasta plata hans, Winter Sun, hefur vakið mikla athygli og fengið framúrskarandi umsagnir.

"Platan er afskaplega áheyrileg, vel gerð og ljúf. Þetta er alþýðutónlist fyrir alla sem vilja hafa það huggulegt."

-Ingveldur Geirsdóttir, mbl.

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.