SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?

Svínastían

Sænsk 2010

Leikstjóri: Pernilla August

Leikarar: Noomi Rapace, Ole Rapace, Outi Mäenpää

6. febrúar í Von

Sýnd kl. 21:00

 

Svinalängorna var valin besta mynd Norðurlanda í fyrra. Myndin fjallar um alkóhólisma og þær byrðar sem sjúkdómur leggur á börn.

 

Fyrir sýningu myndarinnar mun Lárus Blöndal sálfræðingur halda örstuttan fyrirlestur um réttindi barna sem alast upp við mikla ofneyslu áfengis og vímuefna.

 

Svínastían er fyrsta myndin sem sænska verðlaunaleikkonan Pernilla August leikstýrir. Myndin er byggð á metsölubókinni „Svinalängorna“ eftir Susanna Alakoski, sjá umsögn um bókina á Druslubókum og doðröntum.

 

Svínastían var valin besta mynd Norðurlanda í fyrra og fékk einróma lof gagnrýnanda um allan heim. Þórarinn Þórarinsson skrifaði í Fréttatímann:

 

Svinalängorna, eða Svínastían, er fyrsta kvikmyndin sem leikkonan Pernilla August leikstýrir og er alveg hreint magnað byrjandaverk. Myndin segir átakanlega sögu Leenu sem elst upp ásamt litla bróður sínum hjá alkóhóliseruðum foreldrum. Glatað uppeldið setur varanlegt mark á börnin sem fá að kenna á öllu því ógeði sem sjálfhverfir alkar geta mögulega boðið börnum upp á.

 

Myndin hefst þegar Leena, tveggja barna hamingjusamlega gift móðir, fær símtal frá móður sinni sem hún hefur löngu útilokað úr lífi sínu. Sú gamla er að drepast og vill hitta stúlkuna sína. Treg í taumi fer Leena til fundar við konuna sem eyðilagði æsku hennar og gömul sár ýfast upp. Þessi sorgarsaga er sögð í nútíð en Leena hverfur aftur í tíma í huganum og áhorfandinn fær að þjást með henni í ömurleika æskuáranna.

 

Noomi Rapace er frábær í hlutverki Leenu, sýnir á sér allt aðra hlið en í Millennium-þríleiknum og um leið hversu stórkostleg leikkona hún er. Hnátan Tehilla Blad, sem leikur Leenu unga, gefur Noomi svo lítið eftir. Og Pernilla segir sögu Leenu af svo mikilli tilfinningu og tilgerðarleysi að það þarf enginn að skammast sín fyrir að fella nokkur tár yfir örlögum stúlkunnar sem slapp úr svínastíunni.

 

Til baka

 

 

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.