SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?

Traffic

3. október

Traffic

Bandarísk 2000

Leikstjóri: Steven Soderberg

Leikarar: Michael Douglas, Bnicio Del Toro, Catherine Zeta Jones o.fl.

Sýnd kl. 21:00

 

Þetta er heiðarleg tilraun til að draga fram gríðarleg áhrif fíkniefna í samfélaginu. Þrjár sögur fléttast saman. Ein er um nýráðinn forstöðumann fíkniefnastofnunar Bandaríkjanna og fjölskyldu hans. Önnur er um lögrgelumann í Mexíkó og samskipti hans við fíkniefnabaróna og spillt stjórnvöld. Og þriðja um fjölskyldu stórtæks smyglara í San Diego. Úr þessari fléttu verður raunsönn lýsing á skaðlegum áhrifum fíkniefna á einstaklinginn, fjölskylduna, samfélagið, þjóðfélagið og alþjóðasamfélagið. Traffic er ekki aðeins ein besta mynd sem gerð hefur verið um vímuefanvandann heldur er hún líka meðal allra bestu pólitískra mynda.

 

Myndin er byggð á breskri miniseríu fyrir sjónvarp. Þar snúast sögurnar um pakistanska ópíumræktendur, þýska smyglara og breska vímuefnasjúklinga en leikstjórinn Steven Soderberg snéri sögunum upp á Bandaríkin, Mexíkó og kókaín.

 

Allar aðalpersónur sögunar eru skáldaðar en mexíkanski herforinginn er augljóslega byggður á Jesús Gutiérrez Rebollo. Sá er ekki góður maður og situr nú af sér þrjátíu ára dóm fyrir að hafa starfað fyrir fíkniefnabaróninn Amado Carrillo Fuantes, en önnur persóna myndarinnar er byggð á honum. Sá stjórnaði Juárez-glæpasamtökunum af einskæru miskunarleysi og grimmd en er helst minnst fyrir að hafa dáið á skurðborðinu þegar hann gegst undir palstik-skurðaðgerð til að breyta útliti sínu. Reyndar er enn deilt um hvort það var Fuantes sem dó eða frændi hans, hvort hann dó af slysni eða var myrtur og hvort hann er lífs eða liðinn. Andstæðingar Juárez-glæpasamtakanna í myndinni eru síðan byggðir á Arellano Félix-bræðrunum sem stýrðu Tijuana-samtökunum af enn meiri grimmd og skepnuskap en Fuantes sinni grúbbu.

 

Michael Douglas leikur dómara sem tekur að sér starf yfirmanns baráttu alríkisstjórnarinnar gegn fíkniefnavandanum; starf sem oftast er kallar “drug czar”. Þetta hlutverk má rekja til þess þegar Richard Nixon lýsti yfir stríði á hendur eiturlyfjum, þótt ekki hafi verið farið að nota nafngiftina fyrr en á Reagan-árunum. Þessi barátta, sem Nixon hóf og Reagan stórjók, er almennt talin hafa leitt af sér mikinn skaða og sáralítinn árangur. Það er áhugavert fyrir félaga í SÁÁ, Samtökum áhugafólks um áfengis- og vímuefnavandann, að hafa í huga að þessi stefna — að lýsa yfir stríði gegn eiturlyfjavandanum — leysti hægt og bítandi af hólmi eldri stefnu stjórnvalda, sem markaðist fyrst og fremst á auknum aðgangi að meðferð og heilbrigðisþjónustu. Eftir því sem stríðið gekk verr; því meiri fjarmunum var hellt á eldinn og því minna rann til heilbrigðisþjónustu. Þetta leiddi til glæpavæðingar vímuefnasjúkdómsins; fleiri fangaklefa, lengri dóma og færri sjúkrarúma, styttri meðferða. Þótt stefnubreytingin sé ekki eins augljós á Íslandi má samt sjá merki hennar í fáránlega löngum dómum yfir burðardýrum á sama tíma og framlög til áfengis- og vímuefnameðferðar dragast sífellt saman. Eins og í mörgu öðru eru íslensk stjórnvöld tekin að feta sig inn á  ófæra slóða, sem stjórnvöld annarra landa eru að reyna að rata út úr.

 

Að mörgu leyti er Traffic vitnisburður um gagnsleysi þess að glæpavæða sjúkdóminn, áfengis- og vímuefnasýki. Frá því að myndin  var gerð hefur gagnrýni á þessa stefnu haldið áfram að vaxa; nú síðast í sumar með yfirlýsingu áhrifamanna úr viðskipta- og stjórnmálalífi víða að úr veröldinni og í fíkniskýrslu Sameinuðu þjóðanna.

 

Til baka

 

 

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.