SÁÁ

Könnun

Á SÁÁ að þróa sérstaka meðferð fyrir einstaka hópa eða ætti sama meðferðin að duga fyrir alla?

Batanámskeið

 – heil helgi í sjálfskoðun og stöðumati.

 

Helgina 19. og 20. nóvember næstkomandi verður haldið Batanámskeið í Göngudeild SÁÁ í VON.  Batanámskeiðin hafa notið mikilla vinsælda hjá alkóhólistum og fíklum í bata, enda eru þau sett þannig upp að litlu skiptir hvort einstaklingurinn hefur verið edrú í 3 mánuði eða 300 eitthvað á námskeiðinu mun höfða til hans og koma honum að gagni.  Námskeiðin hafa verið mjög fjölbreytt og skemmtileg í gegnum tíðina enda fátt skemmtilegra en að skoða sjálfan sig og draga fram góðan árangur í lífinu og fátt sem gefur manni meira en að skoða þau atriði sem betur mega fara og kryfja hvernig breyta má til batnaðar.

 

Batanámskeiðið er sett saman með fyrirlestrum og hópfundum þar sem fléttað er saman umræðu um fíknisjúkdóma og bata, þróun batans, hvernig bati getur orðið ófullkominn og þróast í fall og svo framvegis.  Einnig er ýtarleg umræða um sjálfsvirðingu og sjálfsskoðun og að mjög líklega verður rætt um reynsluspor AA og hvernig gengur að nýta sér AA samtökin og önnur sambærileg samtök í batanum.  Allir þátttakendur fá möppu með námskeiðsgögnum í upphafi námskeiðsins.

 

Í lok námskeiðsins verður sameiginlegur lokafundur með öllum þátttakendum námskeiðsins þar sem námskeiðið er gert upp og hægt að glöggva sig á ávinningnum. 

 

Markmiðin með námskeiðinu er að auka skilning þátttakenda á bata við fíknisjúkdómum og hjálpa þeim að glöggva sig á hvar þeir eru staddir í bataþróuninni.  Í kjölfarið ættu þeir sem taka þátt í námskeiðinu að skilja betur hvaða verkefnum þeir standa frammi fyrir og vera hæfari til að setja sér markmið.

 

Að framansögðu má sjá að efni Batanámskeiðsins höfðar til mjög margra.  Þeir sem hafa lokið almennri meðferð eða Víkingameðferð á Staðarfelli, kvennameðferð eða Heldrimannameðferð á Vík eða Meðferðarhóp í VON á undanförnum mánuðum hafa margir sett sér það markmið að koma á Batanámskeið, enda er námskeiðið sniðið fyrir þau, en Batanámskeiðið höfðar ekki síður til þeirra sem eiga lengri edrútíma að baki eða hafa jafnvel aldrei farið í formlega meðferð.  Eina skilyrðið fyrir þátttöku er að hafa verið allsgáður og virkur í AA samtökunum í að minnsta kosti þrjá mánuði.

 

.

Námskeiðið stendur yfir á laugardegi milli 09:00 og 16.00

og sunnudegi milli 09:00 og 16:00.

Það kostar krónur 8.000 -

Skráning fer fram hjá ráðgjafa í Göngudeild SÁÁ í Von, Efstalelti 7 í Reykjavík. 

Síminn þar er 530-7600.

Við hlökkum til að sjá þig.

 

 

 

 

 

 

 

 

  

 Reynslusögur á RÚV !

Umfjöllun morgunútvarps Rásar 2 um sjúkdóminn og batann hefur vakið athygli. Fyrst var frábært viðtal við Guðlaugu Kjartansdóttur og í öðrum þætti brilleraði Arnar Eggert. Í þriðja þættinum var viðtal við Önnu Jónu Ármannsdóttur og mæltist henni vel að vanda. Hún hefur verið edrú í 30 ár. Svo heyrum við sögu Valgeirs Skagfjörð í fjórða þættinum. Mælum margfalt með þessum viðtölum á Rás 2.

 

 

 

 Nora Volkow í 60 MINUTES

Viðtal 60 mínútna við mestu áhrifamanneskju í fíkniheimum í dag, Íslandsvininn Noru Volkow, forstöðukonu NIDA, bandarísku fíknirannsóknarstofnunarinnar. Viðtalið er að hálfu um þekkingu á fíkn og að hálfu um afa Noru; félaga Trotskí. Og hér talar hún um hættulegastu fíkniefnin.

 

 

 Dagleiðin langa

Minnum á sýningar SÁÁ á Dagleiðinni löngu; frábært leikrit og aðgangseyririnn rennur til góðra mála. Enginn þarf að velkjast í vafa um hversu góð þessi sýning er; hún er frábær eins og hér kemur fram.