Fara í efni
9. september Viðburðir

Styrktarmót SÁÁ 2026 í Brautarholti

 

Í samstarfi við Vörð-tryggingar verður Styrktarmót SÁÁ haldið á einum glæsilegasta golfvelli landsins, Brautarholti þann 9. september næstkomandi.

 

Leikfyrirkomulag er punktakeppni og keppt verður bæði í karla og kvennaflokki.

Mótið hefst klukkan 09:00 og eru allir ræstir út á sama tíma. Léttur morgunmatur frá klukkan 08:15 og boðið er uppá súpu og brauð yfir verðlaunaafhendingu sem hefst klukkan 14:00. Við fáum afrekskylfing til okkar sem gefur okkur nokkur góð ráð áður en við byrjum að spila og sýnir okkur hvernig þeir bestu fara að útá velli.

  • Verðlaun fyrir 1-3 sæti
  • Nándarverðlaun á öllum par 3 holu
  • Verðlaun fyrir besta nýtingu á velli:)

Stórglæsilegir vinningar í boði, gjafabréf frá Icelandair, golfvörur frá Golfbúðinni, Golftrygging frá Verði, gjafabréf út að borða, gjafabréf á laugarás lagoon, ferðataska frá A-4, vörur frá 66Norður, gjafakörfur frá Góu, Gjafabréf frá Ikea og margt margt fleira.

Allir fá teiggjafir og dregið verður úr skortkortum.

Síðast var uppselt-Smelltu hér til að skrá þig í gegnum golfbox eða hafa samband við stefan@saa.is / 898-4584

Allur ágóði rennur til SÁÁ

Mótsgjald er 15.000,-

Hlökkum til að sjá ykkur