
Aðalstjórn er æðsta vald SÁÁ milli aðalfunda. Kjörgengir í aðalstjórn SÁÁ eru skuldlausir félagar. Hið sama á við um forsvarsfólk lögaðila sem aðild eiga. Missi einstaklingur kjörgengi sitt eða segi sig frá stjórnarstörfum, ber að kjósa í hans stað, út kjörtíma, á næsta aðalfundi SÁÁ. Á aðalfundi 2026 var samþykkt að setja á stofn uppstillingarnefnd (sjá samþykktina hér). Aðalstjórn kaus svo á fyrsta fundi sínum eftir aðalfund í nefndina. (sjá hér)
Í framkvæmdastjórn sitja 9 einstaklingar. Formaður, varaformaður og ritari SÁÁ eru kjörin sérstaklega og sitja sem slík í framkvæmdastjórn. Að auki sitja 6 meðstjórnendur í framkvæmdastjórn. Framkvæmdastjórnarfundir teljast löglegir og ályktunarhæfir, ef 5 einstaklingar úr framkvæmdastjórn mæta. Framkvæmdastjórn gefur aðalstjórn reglubundið skýrslu um störf sín og skal leggja fyrir hana til umræðu og ákvarðanatöku allar fyrirætlanir um meiriháttar fjárfestingu, breytingu á rekstri stofnana eða stofnsetningu nýrra stofnana, svo og ákvarðanatöku um stefnumótun í samskiptum við opinbera aðila ef þurfa þykir. (sjá samþykktir SÁÁ
Nöfn stjórnarmanna stjórn SÁÁ starfsárið 2026-2027 eru aðgengileg á pdf skjali hér.
Aðalstjórn hefur sett sér siðareglur. Þær má nálgast hér.
Fundarsköp aðalstjórnar voru staðfest á fyrsta fundi aðalstjórnar starfsárið 2026-2027. Þau eru aðgengileg hér.
Á aðalfundi var einnig samþykkt erindisbréf nefndar um samþykktir SÁÁ. Það er aðgengilegt hér.