Fara í efni

Skipurit SÁÁ

  Nýtt skipurit var lagt fyrir aðalstjórn SÁÁ þann 24.febrúar 2026.

 

Nýja skipuritið tekur við af skipuriti þar sem þurfti að halda þjónustunni í aðskildum rekstrareyjum vegna þess hvernig samningar SÁÁ og SÍ voru uppbyggðir.

Markmiðin með nýju skipuriti eru eftirfarandi:

  • uppfylla kröfur nýs samnings við SÍ um gæði, ábyrgð og gagnsæi
  • innleiða alþjóðleg viðmið um "clinical governance", sem er gæðakerfi ætlað að tryggja að heilbrigðisþjónusta sé örugg, árangursrík og í stöðugum umbótum
  • skýra faglega ábyrgð og styrkja innra eftirlit
  • samræma þjónustu á milli eininga og bæta þjónustuferla
  • styðja betri kostnaðargreiningu, árangursmælingar og forgangsröðun
  • og tryggja sjálfbæran rekstur og betri þjónustu við sjúklinga