SÁÁ veitir ráðgjöf, fræðslu og meðferð vegna áfengis- og vímuefnavanda og styður bæði einstaklinga og aðstandendur þeirra. Samtökin vinna einnig með fyrirtækjum og stofnunum að því að efla þekkingu og bæta viðbrögð við fíknivanda á vinnustöðum. Með þjónustu eins og Vinnustaðavakt SÁÁ fá stjórnendur fræðslu og stuðning til að takast á við viðkvæm mál af öryggi og virðingu. Markmiðið er að grípa fyrr inn í aðstæður og hjálpa fólki að fá stuðning áður en vandinn verður stærri. Með fræðslu og ráðgjöf leitast SÁÁ við að auka vitund, styðja heilbrigðari vinnustaði og hjálpa fólki að ná betra lífi.
Bókaðu hjá okkur kynningu á Vinnustaðavakt SÁÁ. Við höfum svo samband og finnum tíma sem hentar.
Skráning hér að neðan
Við sendum fréttir af starfseminni um það bil tvisvar í mánuði, afskráning er bara einn smellur.