Fíknvandi hefur ekki aðeins áhrif á einstaklinginn heldur einnig fjölskyldu hans og nánasta umhverfi. Þess vegna býður SÁÁ upp á stuðning, fræðslu og ráðgjöf fyrir aðstandendur.
Aðstandendanámskeið
Þjónusta SÁÁ við fjölskyldur er ætluð aðstandendum fólks með fíknsjúkdóm
Fræðslan er í formi fyrirlestrar þar sem farið er yfir hvernig foreldrar geta rætt við börnin sín um fíknsjúkdóminn. Sálfræðingur stýrir umræðum og svarar spurningum foreldra. Þátttakendur fá útprentað efni sem þeir geta nýtt sér og kynnt fyrir börnunum sínum.