Fara í efni
11 ágúst - 29 september Viðburðir Von, Efstaleiti 7

Foreldranámskeið fyrir foreldra ungmenna með fíknivanda

Þann 11. ágúst næstkomandi mun fjölskyldudeild SÁÁ fara af stað með foreldranámskeið sem sérstaklega er ætlað foreldrum og/eða öðrum umönnunaraðilum ungmenna (18-25 ára) sem eiga í áfengis-og/eða vímuefnavanda, hvort sem þau hafi farið í meðferð hjá SÁÁ eða ekki.

Foreldranámskeiðið er byggt á gagnreyndum aðferðum eins og áhugahvetjandi samtalstæki (Motivational Interviewing) og CRAFT (Community Reinforcement and Family Training). Þessar aðferðir hafa reynst vel fyrir fjölskyldur fólks með fíknivanda.

Markmið námskeiðsins:

  • Að auka þekkingu á fíknivanda ungmenna, þróun vandans og birtingarmyndum.
  • Að kenna aðferðir til að hvetja ungmenni til breytinga, fjölskyldunni allri til bóta.
  • Að efla og styðja foreldra með því að kenna leiðir til sjálfsræktar.

Fyrirkomulag námskeiðs:

  • Námskeiðið telur 8 vikur (11. ágúst til og með 29.september)
  • Haldið þriðjudaga frá kl 15:00 til 17:00

Umsjónarmenn námskeiðs eru:

Bjarney Rún Haraldsdóttir, fjölskyldufræðingur og Páll Heiðar Jónsson, sálfræðingur.

Námskeiðið kostar 40.000.- fyrir einstakling og 70.000.- fyrir par

Með því að smella hér getur þú skráð þig á námskeiðið

Frekari upplýsingar má sjá á heimasíðu SÁÁ (https://www.saa.is/is/thjonusta-vid-fjolskyldur/foreldranamskeid).

Einnig má senda fyrirspurnir á foreldrar@saa.is eða hafa samband við göngudeild SÁÁ í síma 530-7600.