Fara í efni
21. nóvember kl. 16:30-18:30 Viðburðir Von, Efstaleiti 7

Fræðsluerindi - Að tala við börn um fíknsjúkdóminn í fjölskyldunni

Þriðjudaginn 21. nóvember verður fræðsluerindi í Göngudeild SÁÁ Von, Efstaleiti 7 frá kl. 16:30 - 18:30.

Bergþóra Kristín Ingvarsdóttir og Silja Jónsdóttir, sálfræðingar í Barnaþjónustu SÁÁ munu flytja fræðslu fyrir foreldra og aðra aðstandendur og stýra umræðum um hvernig eigi að tala við börn um fíknsjúkdóminn í fjölskyldunni.

Fræðslan byggir á 15 ára reynslu SÁÁ af því að bjóða upp á sálfræðiþjónustu fyrir börn fólks með fíknisjúkdóm.

Þeir sem mæta á fræðslukvöldið fá útprentað efni sem þeir geta nýtt sér og kynnt fyrir börnunum.

Markmið fræðslunnar:

  • Þátttakendur öðlist færni í að ræða um fíknsjúkdóminn við börnin sín.
  • Draga úr ráðaleysi og óöryggi sem getur fylgt aðstæðunum.
  • Auka lífsgæði og líðan þeirra sem búa við fíknsjúkdóm í fjölskyldunni.

Verð fyrir einstakling er 6.000 kr.- og 9.000 kr.- fyrir par.

Skráning á barn@saa.is og í síma 530-7600.