01. október 2026
Aðstandendanámskeið SÁÁ á Akureyri
Ert þú aðstandandi einstaklings með fíknsjúkdóm?
SÁÁ býður upp á tveggja daga námskeið fyrir aðstandendur þar sem markmiðið er að auka skilning á fíknsjúkdómnum og áhrifum hans á fjölskyldu og nánasta umhverfi.
Á námskeiðinu er meðal annars fjallað um:
- Einkenni og birtingarmyndir fíknar
- Áhrif á fjölskyldu og samskipti
- Bataferlið og leiðir til breytinga
- Sjálfsumhyggju og mikilvægi heilbrigðra marka
Námskeiðið samanstendur af fræðslu og umræðuhópum þar sem þátttakendur fá tækifæri til að vinna með efnið, deila reynslu og læra af öðrum í svipuðum aðstæðum.
Námskeiðið hentar öllum aðstandendum, svo sem foreldrum, mökum, systkinum, uppkomnum börnum og öðrum nánum.
Dagsetningar:
Föstudagur 30.október kl. 09:00–16:00
Laugardagur 31.október kl. 10:00–16:00
Staðsetning:
Hvannavellir 14, 2. hæð
Skráning og nánari upplýsingar:
fjolskyldan@saa.is