Fara í efni
04. ágúst 2026

Af hverju tekur SÁÁ þátt í Hinsegin dögum?

Hjá SÁÁ vinnum við á hverjum degi að því að veita öllum örugga, faglega og virðingarfulla þjónustu – óháð kynhneigð, kynvitund eða kyntjáningu.

Þess vegna tökum við þátt í Hinsegin dögum.

Þátttaka okkar snýst ekki aðeins um að fagna fjölbreytileikanum heldur einnig um að undirstrika mikilvægi þess að heilbrigðisþjónusta og meðferð sé aðgengileg öllum. Öll eiga rétt á að upplifa öryggi, virðingu og að þau geti leitað sér hjálpar án ótta við fordóma eða mismunun.

Hinsegin fólk stendur frammi fyrir auknum áskorunum

Rannsóknir sýna að fólk úr hinsegin samfélaginu er líklegra en gagnkynhneigt og sískynja fólk til að glíma við áfengis- og vímuefnavanda. Ástæður þess liggja ekki í kynhneigð eða kynvitund sjálfri heldur því aukna álagi sem getur fylgt því að tilheyra jaðarsettum hópi.

Svokölluð minnihlutaálagskenning (e. minority stress theory) lýsir því hvernig langvarandi streita vegna fordóma, mismununar, höfnunar eða ótta við að vera ekki samþykkt getur haft neikvæð áhrif á bæði andlega og líkamlega heilsu. Slíkt álag getur einnig aukið líkur á því að fólk leiti í áfengi eða önnur vímuefni til að takast á við erfiðar aðstæður.

Rannsóknir benda jafnframt til þess að upplifun af fordómum eða óöryggi innan heilbrigðiskerfisins geti orðið til þess að sumir fresti því að leita sér hjálpar eða finni síður fyrir því að þjónustan sé ætluð þeim. Þess vegna skiptir miklu máli að meðferðarúrræði séu bæði fagleg og fordómalaus.

Bati á að vera fyrir öll

Hlutverk SÁÁ er að mæta fólki þar sem það er statt og styðja það á leið til bata. Það gerum við með því að skapa öruggt umhverfi þar sem hver og einn fær að vera hann sjálfur.

Þátttaka okkar í Hinsegin dögum endurspeglar þau gildi sem við vinnum eftir allt árið: jafnræði, mannvirðingu og aðgengilega þjónustu fyrir öll.

Við stöndum með hinsegin samfélaginu – ekki aðeins í ágúst heldur alla daga ársins. Vegna þess að bati á að vera mögulegur fyrir öll.