Fara í efni
14. maí 2025

Akureyrarbær með öfluga þátttöku á lokaspretti álfasölunnar

Álfasölunni 2025 er nú lokið og við hjá SÁÁ erum þakklát þeim stuðningi sem barst víða að – ekki síst frá Norðurlandi.

Á meðal þeirra sem tóku virkan þátt í lokasprettinum var Akureyrarbær, en Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri tók nýverið á móti stóra álfinum af Önnu Hildi Guðmundsdóttur, formanni SÁÁ.

Við hjá SÁÁ viljum færa bæjarfélaginu bestu þakkir fyrir gott framlag og góðar móttökur. Þátttaka sveitarfélaga skiptir máli – ekki aðeins fjárhagslega, heldur sem tákn um samstöðu og trú á mikilvægi forvarnar- og meðferðarstarfs SÁÁ.

Kærar þakkir Akureyri – saman búum við til betri framtíð.

Anna Hildur Guðmundsdóttir formaður SÁÁ að afhenda Ásthildi Sturludóttur bæjarstjóra Akureyrarbæjar stóra Álfinn.