07. maí 2025
Álfurinn fyrir norðan!
Álfasalan 2025 hófst formlega í dag og viðbrögðin hafa verið afar jákvæð. Sem fyrr styður álfasalan við mikilvægt starf SÁÁ og hefur vakið mikla athygli víða um land.
Á Norðurlandi var stemningin sérstaklega góð þar sem stóri álfurinn var seldur til nokkurra fyrirtækja sem sýndu málefninu mikinn velvilja og samhug. Hér að neðan má sjá nokkrar myndir sem teknar voru við þetta tilefni.
Við hjá SÁÁ þökkum kærlega fyrir þann hlýhug og stuðning sem samfélagið sýnir með þátttöku sinni í álfasölunni. Hvetjum við alla landsmenn til að styðja við baráttuna gegn fíknisjúkdómum með því að kaupa álfa – stóra sem smáa.
Skógarböðin við Akureyri styrkja SÁÁ með kaupum á álfinum þriðja árið í röð. Álfurinn naut sín vel í slökun í böðunum eftir ferðalagið norður líkt og aðrir gestir Skógarbaðanna.
Takk kærlega fyrir stuðninginn :)


Höldur - Bílaleiga Akureyrar styrkur okkur með kaupum á stóra SÁÁ álfinum líkt og undanfarin ár.
SÁÁ þakkar þeim kærlega fyrir stuðninginn og óskar þeim til hamingju með nýjasta álfinn í safnið.

Finnur ehf heldur uppteknum hætti og bætir þriðja stóra álfinum í safnið sitt með veglegum styrk til SÁÁ. Þökkum Finn ehf kærlega fyrir styrkinn enn eitt árið.

Malbikun Norðurlands taka þátt í álfasölu SÁÁ með því að kaupa stóra álfinn og berum við þeim kærar þakkir fyrir.

Herramennirnir í JMJ eru dyggir stuðningsmenn SÁÁ og tóku á móti nýjum álfi í safnið sitt.
Takk kærlega fyrir að styrkja okkur eitt árið enn.

Enn einn stóri álfurinn var afhentur á Akureyri og voru það dyggir stuðningsmenn í Djáknanum sem tóku á móti honum. Berum við þeim bestu þakkir fyrir stuðninginn.