Fara í efni
24. september 2026

Baldvina Ýr hefur störf sem forstjóri SÁÁ

Baldvina Ýr Hafsteinsdóttir hóf í dag störf sem forstjóri SÁÁ. Stjórn SÁÁ býður Baldvinu hjartanlega velkomna til starfa og hlakkar til samstarfsins. Stjórnin bindur miklar vonir við störf hennar og þá reynslu og þekkingu sem hún kemur með inn í starfsemi samtakanna, sjúklingum, starfsfólki og félagsmönnum til heilla.
 
Baldvina Ýr Hafsteinsdóttir, nýr forstjóri SÁÁ um sín fyrstu verkefni:
„Ég er þakklát fyrir það traust sem mér er sýnt og hlakka til að vinna með því öfluga fagfólki sem starfar hjá SÁÁ," segir Baldvina Ýr. „Fyrstu verkefni mín eru skýr: að tryggja mönnun og örugga þjónustu við sjúklinga á Vogi, hlusta á starfsfólk og byggja upp stöðugleika. Það er verkefni sem verður ekki leyst í einu bretti, en það verður leyst."
„Ég hef unnið náið með Sjúkratryggingum Íslands, heilbrigðisráðuneytinu og eftirlitsaðilum í fyrri störfum og legg áherslu á opið og formlegt samstarf við þá alla. Ég óska eftir því að fá tækifæri til að setja mig inn í reksturinn og leysa tímabundnar áskoranir við að manna stöður.”
 
Anna Hildur Guðmundsdóttir, formaður SÁÁ, segir samtökin fagna því að Baldvina sé tekin til starfa:
„Baldvina Ýr kemur inn með mikla reynslu af rekstri heilbrigðisþjónustu og af því að leiða breytingar. Framkvæmdastjórn hefur veitt henni fullt umboð til að leiða starfsemina og hún fær það rými sem þarf til að sinna sínu verkefni,” segir Anna Hildur.
„Heilbrigðisráðherra hefur lýst því yfir að SÁÁ verði gefið svigrúm til að koma starfseminni í eðlilegt horf. Við fögnum þeirri afstöðu og tökum ráðherra á orðinu. Nýr forstjóri er tekinn til starfa, unnið er að mönnun frá degi til dags og samtökin hafa sent heilbrigðisráðuneytinu formlegt erindi um stöðuna. Það svigrúm sem ráðherra boðar er einmitt það sem þarf til að ljúka verkinu og við munum nýta það."