Bjarney Rún Haraldsdóttir ráðin fagstjóri á Vík
Bjarney Rún Haraldsdóttir hefur verið ráðin fagstjóri á Vík. Hún hefur starfað sem fjölskyldufræðingur á göngudeild SÁÁ frá apríl 2025 og tekið þátt í þróun þjónustu við fjölskyldur.
Í starfi sínu á göngudeild hefur Bjarney sinnt viðtölum og námskeiðum fyrir aðstandendur samhliða því að vinna að þróun fjölskylduþjónustunnar.
Bjarney er með BA-próf í sálfræði og hefur lokið diplómanámi í fjölskyldumeðferð á meistarastigi. Þá lýkur hún námi í áfengis- og vímuefnaráðgjöf í lok árs.
Hún hefur fjölbreytta reynslu af meðferðarstarfi og stjórnun. Hún hefur starfað í þverfaglegu geðheilsuteymi Heilsugæslunnar, verið verkefnastýra Kvennaathvarfsins á Akureyri og teymisstjóri í Bjarmahlíð, miðstöð fyrir þolendur ofbeldis. Þá hefur hún gegnt stjórnarformennsku hjá Berginu Headspace.
Við óskum Bjarneyju innilega til hamingju með nýja starfið og hlökkum til samstarfsins um faglega þróun meðferðarstarfsins á Vík.
