Fara í efni
09. september 2026

Frábær stemning á golfmóti SÁÁ í Brautarholti

Golfmót SÁÁ fór fram á Brautarholtsvelli í dag við góðar undirtektir. Um 80 keppendur voru skráðir til leiks og hófst dagskráin snemma morguns þegar fyrstu holl voru ræst út klukkan 9. Leiknar voru 18 holur og ríkti góð stemning meðal keppenda frá upphafi til enda.

Áður en leikur hófst bauð Þráinn Farestveit, varaformaður SÁÁ, keppendur hjartanlega velkomna og óskaði þeim góðs gengis. Stefán Pálsson, markaðs- og verkefnastjóri SÁÁ, hélt vel utan um skipulagið og sá til þess að allt væri tilbúið þegar keppendur héldu út á völl.

Tekið var vel á móti keppendum í golfskálanum um morguninn, þar sem boðið var upp á kaffi og rúnstykki áður en haldið var af stað. Allir þátttakendur fengu einnig teiggjöf til minningar um daginn.

Veðrið lék ekki aðalhlutverkið í mótinu, enda var það góði félagsskapurinn, samveran og stemningin sem stóðu upp úr. Bros voru á vör, léttleiki yfir hópnum og keppendur nutu þess að eiga saman góðan dag á vellinum.

Brautarholtsvöllur hefur tekið miklum breytingum frá því golfmót SÁÁ var haldið þar í fyrra. Völlurinn hefur verið stækkaður og var sérstaklega ánægjulegt að geta nú leikið heilan 18 holu hring. Aðstaðan vakti mikla lukku meðal keppenda, ekki síst glæsilegur golfskálinn og fallegt umhverfi vallarins.

Eftir keppnina komu þátttakendur saman í golfskálanum, þar sem boðið var upp á ljúffenga kjúklingasúpu. Þar gafst gott tækifæri til að rifja upp atvik dagsins, ræða golfið og njóta áfram samverunnar. Þessi notalega stund setti skemmtilegan endapunkt á vel heppnað mót.

Vörður styrkti golfmótið og færum við fyrirtækinu innilegar þakkir fyrir mikilvægan stuðning. Við þökkum einnig öllum þeim fyrirtækjum sem lögðu til vinninga í mótið. Slíkur stuðningur skiptir miklu máli og á stóran þátt í því að unnt er að halda viðburð sem þennan.

Sérstakar þakkir fær Gunnar ásamt öllu starfsfólki Brautarholtsvallar fyrir frábærar móttökur og mikla lipurð við undirbúning og framkvæmd mótsins. Starfsfólkið lagði sig fram um að allt gengi vel og tók einstaklega vel á móti keppendum og gestum SÁÁ.

Golfmót SÁÁ er mikilvægur liður í félagsstarfi samtakanna og sameinar hreyfingu, útiveru og dýrmæta samveru. Dagurinn sýndi enn á ný hversu miklu máli góður félagsskapur skiptir. Þegar upp var staðið voru það samveran, gleðin og góða stemningin sem gerðu mótið eftirminnilegt.

SÁÁ færir öllum keppendum, styrktaraðilum og öðrum sem lögðu hönd á plóg hjartans þakkir fyrir þátttökuna og einstaklega ánægjulegan dag á Brautarholtsvelli.

Nöfn sigurvegara:

 

Konur:

1.sæti - Helena Dröfn Jónsd. Wellings
2.sæti - Hervör Poulsen
3.sæti - Helena Hilmarsdóttir

Karlar:

1.sæti - Sigurður Valur Fjelsted

2.sæti - Hannes Steinar Guðmundsson

3.sæti - Eggert Magnús Ingólfsson (Ekki á mynd)