Fara í efni
06. október 2026

Námskeið fyrir foreldra og aðra aðstandendur framundan hjá SÁÁ

Aðstandendanámskeið SÁÁ hefst í Reykjavík 12. október og foreldranámskeið hefst 20. október. Þá verður aðstandendanámskeið haldið á Akureyri 30.–31. október. Námskeiðin veita fræðslu og stuðning en hafa ólíkar áherslur og markhópa.

Fíknivandi getur haft víðtæk áhrif á fjölskylduna. Á námskeiðum SÁÁ fá foreldrar og aðrir aðstandendur tækifæri til að auka þekkingu sína, ræða eigin reynslu og læra leiðir til að hlúa að sér og stuðla að breytingum til bóta.

Aðstandendanámskeið í Reykjavík og á Akureyri

Aðstandendanámskeiðið er ætlað foreldrum, mökum, systkinum, fullorðnum börnum og öðrum nánum aðstandendum fólks með fíknsjúkdóm. Aðstandendur geta nýtt sér þjónustuna hvort sem ástvinur þeirra hefur farið í meðferð eða ekki.

Fjallað er um fíknsjúkdóminn og áhrif hans á aðstandendur, auk bata, sjálfsræktar, áhugahvatar til breytinga og marka. Fræðsluerindi og umræðuhópar gefa þátttakendum tækifæri til að ræða viðfangsefnin og eigin reynslu.

Í Reykjavík stendur næsta námskeið frá 12. október til 4. nóvember 2026, á mánudögum og miðvikudögum kl. 16–18, í göngudeild SÁÁ að Efstaleiti 7. Næsta námskeið þar á eftir verður 9. nóvember–2. desember. Á Akureyri verður námskeið haldið 30.–31. október.

Verðið er 40.000 krónur fyrir einstakling og 70.000 krónur fyrir par. Til að ljúka skráningu þarf að greiða 20.000 króna staðfestingargjald. Nánari upplýsingar og aðstoð við skráningu fást á fjolskyldan@saa.is.

Upplýsingar og skráning á aðstandendanámskeið.

Foreldranámskeið hefst 20. október

Foreldranámskeiðið er sérstaklega ætlað foreldrum og öðrum umönnunaraðilum ungmenna á aldrinum 18–25 ára sem eiga við áfengis- eða vímuefnavanda að stríða. Ungmennið þarf ekki að hafa farið í meðferð til að foreldrar geti tekið þátt.

Áhersla er lögð á skilning á fíknivanda ungmenna, farsæl samskipti, mörk og leiðir til að hvetja til jákvæðra breytinga. Einnig er unnið með sjálfsrækt og líðan foreldra. Námskeiðið byggir meðal annars á áhugahvetjandi samtali og CRAFT (Community Reinforcement and Family Training) og felur í sér fræðslu, umræður og verkefnavinnu.

Námskeiðið stendur frá 20. október til 8. desember 2026, á þriðjudögum kl. 15–17, í göngudeild SÁÁ að Efstaleiti 7. Verðið er 40.000 krónur fyrir einstakling og 70.000 krónur fyrir par eða hjón. Við skráningu greiðist 20.000 króna staðfestingargjald. Handbók er innifalin í verði.

Skráning og fyrirspurnir fara í gegnum foreldrar@saa.is.

Nánari upplýsingar um foreldranámskeiðið.

Hver er munurinn?

Aðstandendanámskeiðið hentar fólki í ólíkum fjölskyldutengslum og veitir almenna fræðslu um fíknsjúkdóminn og áhrif hans á aðstandendur. Foreldranámskeiðið beinist sérstaklega að foreldrum og umönnunaraðilum ungmenna á aldrinum 18–25 ára og kennir aðferðir til að styðja við breytingar hjá ungmenninu og efla eigin líðan.

Bæði námskeiðin leggja áherslu á þekkingu, sjálfsrækt og stuðning við fjölskyldur. Frekari upplýsingar fást hjá göngudeild SÁÁ í síma 530 7600.