Fara í efni
07. maí 2026

Fyrirtæki leggja SÁÁ lið í álfasölunni

Álfasala SÁÁ hefur farið afar vel af stað og fjölmörg fyrirtæki hafa sýnt starfsemi samtakanna mikilvægan stuðning með kaupum á stóra álfnum.

Meðal þeirra fyrirtækja sem hafa lagt okkur lið eru JYSK, Mílan, Læknastofur Reykjavíkur, Act4, MS, Stoð, Tryggja, Kemi og Bílabúð Benna.

Stuðningurinn skiptir miklu máli og hjálpar SÁÁ að halda áfram mikilvægu starfi í þágu einstaklinga og fjölskyldna sem glíma við fíknsjúkdóma.

Við færum öllum fyrirtækjunum okkar bestu þakkir fyrir stuðninginn og samfélagslega ábyrgð.