Fara í efni
25. júní 2026

Gjöf í þakklætisskyni á eins árs edrúafmæli

Í dag fékk SÁÁ ánægjulega heimsókn þegar Raggi Rögg kom og færði SÁÁ gjöf í tilefni þess að hann á eins árs edrúafmæli í dag.

Við afhendinguna sagði Raggi Rögg að það væri alls ekki sjálfsagt að fá að sofna og vakna edrú á hverjum degi. Hann lýsti miklu þakklæti fyrir þann stuðning sem hann hefur fengið hjá SÁÁ og sagði að hann hefði fundið hjá sér sterka löngun til að gefa til baka.

„Mig langaði að færa ykkur þakkir. Ég held að fólk átti sig ekki alltaf á því hversu öflugt starf SÁÁ vinnur fyrir þjóðfélagið.“

Raggi Rögg sagði batann hafa opnað nýjar dyr í lífi sínu. Eftir að hann varð edrú hafi sköpunargleðin vaknað á ný og hann byrjað aftur að mála og yrkja ljóð. Gjöfin sem hann færði SÁÁ samanstendur af málverki og ljóði sem ber heitið Birta og endurspeglar þá von og birtu sem batinn hefur fært honum. Með gjöfinni afhenti Raggi Rögg einnig þrjár rósir. Hver þeirra táknaði eitt orð í þakklætiskveðju hans til SÁÁ: „TAKK-FYRIR-ALLT.“

Anna Hildur, formaður SÁÁ, þakkaði Ragga Rögg fyrir hlýhuginn og sagði slíkar stundir skipta miklu máli fyrir samtökin.

„Fyrir okkur skiptir miklu máli að sjá þegar fólk nær þessum mikilvæga áfanga. Fyrsta árið er stór áfangi og nú tekur við tími þar sem þarf að njóta árangursins og halda áfram að rækta batann. Þakklæti og auðmýkt fyrir batanum hafa verið mitt leiðarljós og það er sérstaklega ánægjulegt að sjá þau gildi endurspeglast í þessari fallegu gjöf.“

Við hjá SÁÁ óskum Ragga Rögg innilega til hamingju með fyrsta edrúárið og þökkum honum kærlega fyrir hlýhuginn, traustið og veglega gjöf. Við munum finna flottan stað fyrir þessi verk. Við óskum honum velfarnaðar á áframhaldandi batagöngu.

Raggi Rögg deilir list sinni undir heitinu Litaflóð – málverk og ljóð, þar sem hann sameinar myndlist og ljóðlist. Hægt er að fylgjast með verkum hans á Facebook: Litaflóð – málverk og ljóð.