Fara í efni
05. ágúst 2026

Golfmóti SÁÁ frestað til 9. september vegna veðurs

Vegna óhagstæðrar veðurspár hefur verið ákveðið að fresta golfmóti SÁÁ, sem átti að fara fram á morgun, fimmtudaginn 6. ágúst.

Mótið verður þess í stað haldið miðvikudaginn 9. september.

Allir skráðir þátttakendur fá tilkynningu um breytinguna og verða sjálfkrafa færðir yfir á nýjan mótsdag.

Ef einhverjar spurningar vakna er hægt að hafa samband við Stefán Pálsson með því að senda tölvupóst á stefan@saa.is.

Við þökkum fyrir skilninginn og hlökkum til að sjá ykkur á nýjum keppnisdegi.