Fara í efni
18. ágúst 2026

Minning Guðmundar Más heiðruð með gjöf til SÁÁ

SÁÁ tók í dag við góðri peningagjöf til minningar um Guðmund Má Sigurðsson, sem lést í apríl síðastliðnum.

Guðmundur Már átti langa og farsæla edrúmennsku að baki og hefði fagnaði 40 ára edrúafmæli í febrúar á þessu ári. Hann sótti AA-fundi í Hafnarfirði og var umhugað um að styðja aðra og halda vel utan um fólkið í kringum sig.

Eiginkona hans, Míla Sólrún Sigurðsdóttir, og yngsta dóttir þeirra, María Teresa Guðmundsdóttir, afhentu SÁÁ gjöfina fyrir hans hönd.

Afhendingin var fjölskyldunni sérstaklega hugleikin þar sem brúðkaupsafmæli Guðmundar Más og Mílu Sólrúnar var 17. ágúst.

Guðmundur Már vildi hjálpa öllum og halda utan um fólkið í kringum sig. Fjölskylda hans telur því að stuðningur við starf SÁÁ sé nákvæmlega það sem hann hefði viljað að fjármunirnir nýttust í.

SÁÁ færir fjölskyldu Guðmundar Más og öllum þeim sem lagt peningagjöfinni lið innilegar þakkir fyrir þessa hlýju gjöf. Hún mun nýtast í mikilvægu starfi SÁÁ.

Frá vinstri: Anna Hildur Guðmundsdóttir, formaður SÁÁ, Míla Sólrún Sigurðson og María Teresa Guðmundsdóttir við afhendingu gjafarinnar til minningu um Guðmund Má Sigurðsson.