Fara í efni
13. október 2025

Nemendur FSU söfnuðu 420 þúsund krónum til styrktar SÁÁ

Í síðustu viku var haldin Góðgerðarvika í Fjölbrautaskólanum á Suðurlandi (FSU) – ein af stærstu og skemmtilegustu viðburðarvikum ársins í skólanum. Þá sameinast nemendur og kennarar um að safna pening fyrir gott málefni og skapa gleði og samhug í leiðinni. Að þessu sinni ákvað skólinn að styrkja SÁÁ, og söfnuðust alls 420.000 krónur sem renna óskiptar til samtakanna.

Góðgerðarvika er orðinn fastur liður í skólastarfinu og hefur ávallt það markmið að efla samkennd og samfélagslega ábyrgð meðal nemenda. Vikan einkennist af fjöri, sköpun og ótrúlega fjölbreyttum áskorunum þar sem nemendur og kennarar leggja sig alla fram til að safna sem mestu.

Á meðal áskorana vikunnar má nefna tískusýningu kennara, hjólað í skólann frá Hveragerði til Selfoss, spicy noodle challenge, rjóma formann, gata eyrun, skríða í skólan og kennara í trúðabúningi – og listinn heldur áfram! Í hvert sinn sem einhver tók áskorun, rann fjárhæð til styrktar SÁÁ.

Andrúmsloftið í skólanum var líflegt alla vikuna. Fólk hvatti hvert annað áfram, hló og safnaði með stolti. Slíkar vikur minna á að góðverk þurfa ekki alltaf að vera alvarleg – þau geta líka verið gleðileg, fyndin og samheldin.

„Það gleður okkur óendanlega að sjá ungt fólk taka svona fallega höndum saman fyrir málefni sem skiptir svo marga máli,“ segir Anna Hildur formaður SÁÁ.
„Svona framtak sýnir að samstaða, húmor og hjartahlýja geta haft raunveruleg áhrif. Við hjá SÁÁ erum innilega þakklát fyrir stuðninginn frá FSU og öllum þeim sem tóku þátt í Góðgerðarvikunni, þetta skiptir miklu máli.“

FSU fær hjartans þakkir frá SÁÁ fyrir að leggja sitt af mörkum til að styðja við fólk og fjölskyldur sem glíma við fíkn – og fyrir að sýna hvernig samstaða, sköpun og kærleikur geta haft raunveruleg áhrif.

Nemendafélag FSU ásamt Guðnýju, starfsmanni SÁÁ