Fara í efni
30. júní 2026

„Bedrú“ – skapandi lokaverkefni nemenda í Álftanesskóla

Nemendur í Álftanesskóla hönnuðu áfengislausan skemmtistað sem lokaverkefni

Hvernig væri skemmtistaður þar sem góð stemning og samvera væru í fyrirrúmi en áfengi ekki hluti af upplifuninni? Þessari spurningu svöruðu fjórir nemendur í 10. bekk Álftanesskóla með lokaverkefni sínu „Bedrú“.

Verkefnið var hluti af þverfaglegu lokanámsmati þar sem námsgreinar á borð við íslensku, ensku, dönsku, stærðfræði, náttúrugreinar og samfélagsgreinar voru fléttaðar saman. Markmiðið var að tengja námið við raunveruleikann, efla sjálfstæð vinnubrögð, samvinnu og sköpunargáfu.

Nemendurnir Tinna Marý Guðmundsdóttir, Ásta Emilý Evertsdóttir, Bríet Dagbjartsdóttir og Viktoría Skarphéðinsdóttir völdu að stofna fyrirtæki og þróuðu hugmyndina að Bedrú – áfengislausum skemmtistað fyrir ungt fólk.

Sem hluta af verkefninu unnu þær meðal annars viðskipta- og fjárhagsáætlun, gerðu umhverfisáætlun, skrifuðu fréttir og auglýsingar á íslensku, ensku og dönsku, hönnuðu líkan af staðnum og kynntu verkefnið fyrir kennurum við lok námsmatsins.

Nafnið „Bedrú“ er dregið af orðunum betra og edrú, innblásið af orðunum „Edrú líf, betra líf“.

Verkefnið vakti athygli fyrir frumlega nálgun sína og sýnir vel hvernig hægt er að sameina frumkvöðlahugsun, sköpun og samfélagslega ábyrgð í skólastarfi. Hugmyndin um Bedrú minnir á að góð skemmtun þarf ekki að snúast um áfengi heldur getur byggst á tónlist, samveru og jákvæðri upplifun.

„Okkur fannst vanta stað þar sem ungt fólk gæti komið saman og skemmt sér án áfengis. Þess vegna kom hugmyndin að Bedrú. Það var mjög gaman að þróa hugmyndina frá grunni og sjá hana þróast og verða að veruleika.“
Tinna Marý Guðmundsdóttir

Að mati SÁÁ er sérstaklega ánægjulegt að sjá ungt fólk velta fyrir sér nýjum leiðum til afþreyingar og skapa hugmyndir sem stuðla að heilbrigðri menningu og fjölbreyttum valkostum fyrir jafningja sína.

Myndir af lokaverkefinu / aðsend.