Fara í efni
15. október 2026

Nýtt nám í Áfengis- og vímuefnaráðgjöf

Hálskólinn á Akureyri hefur ákveðið að setja upp nýtt þriggja ára bakkalárnám í Áfengis- og vímefnaráðgjöf.

Námið verður hýst undir Hjúkrunarfræðideild HA. Á heimsíðu Háskólans á Akureyri kemur fram að náminu sé ætlað að styrkja sérhæfing fagfólks á sviðinu. Þetta nám verður 180 ECTS-einingar og verður það fyrsta sinnar tegundar á Íslandi en hingað til hefur Símenntun HA verið með umfangsmikil námskeið á þessu sviði.

Með nýju námsleiðinni er brugðist við brýnni þörf fyrir formlega háskólamenntun á þessu sviði og aukinni eftirspurn eftir sérhæfðu fagfólki innan heilbrigðis- og velferðarþjónustu og mun búa stúdenta undir störf við forvarnir, ráðgjöf, meðferð og endurhæfingu einstaklinga með fíknivanda og fjölskyldna þeirra. Rík áhersla verður lögð á klíníska þekkingu og færni, gagnreyndar aðferðir, fagmennsku, rannsóknarlæsi og þverfaglega teymisvinnu. Námið verður að mestu kennt í fjarnámi með reglulegum staðlotum við háskólann og klínísku námi á viðeigandi vettvangi. 

Þetta nýja nám er mikil viðurkenning á störfum áfengis- og vímuefnaráðgjafa, sem hafa verið til sem sérstök heilbrigðisstétt með starfsleyfi frá árinu 2007, en varð til hjá SÁÁ miklu fyrr. Námið mun styrkja stöðu þessarar fagstéttar og auka möguleika heilbrigðis- og félagsþjónustu til að veita einstaklingum og fjölskyldum þeirra heildræna og gagnreynda þjónustu eins og hefur verið gert hjá SÁÁ í 49 ár.

Til hamingu áfengis- og vímuefnaráðgjafar, til hamingju SÁÁ, til hamingu Háskólinn á Akureyri og til hamingju miklar þakkir til þeirra sem gerðu þetta að veruleika.

Athugið að myndirnar sem fylgja þessari frétt eru samsettar.