Fara í efni
12. mars 2026

Oddur Sigujónsson skrifar um spilafíkn

Í nýrri grein á visir.is undirstrikar Oddur Sigurjónsson áfengis- og vímuefnaráðgjafi, að spilafíkn sé alvarlegt heilbrigðis- og lýðheilsumál sem hefur áhrif á fjárhag, fjölskyldulíf og geðheilsu einstaklinga. Rannsóknir sýna tengsl spilavanda við sjálfsvígshugsanir og aðgengi að fjárhættuspilum hafi aukist verulega með stafrænu umhverfi. Oddur bendir á að spilafíkn sé vanmetin innan heilbrigðiskerfisins þrátt fyrir mjög alvarlegar afleiðingar. Nýr samningur SÁÁ og Sjúkratrygginga Íslands um meðferð við fíkn tekur einnig á meðferð við spilafíkn og er  skref í rétta átt, en frekari forvarnir, skimun og fræðsla er nauðsynleg til að mæta vandanum.