SÁÁ í samstarfi við háskólasamfélagið
SÁÁ leggur ríka áherslu á faglegt samstarf, rannsóknir og þróun þekkingar á sviði fíknisjúkdóma og geðheilbrigðis. Reglulega vinna háskólanemar lokaverkefni sín í samstarfi við starfsfólk SÁÁ þar sem gögn, reynsla og sérþekking stofnunarinnar nýtast við rannsóknir og fræðastarf.
Nýverið voru tvö lokaverkefni unnin í samstarfi við SÁÁ undir leiðsögn Dr. Ingunnar Hansdóttur, framkvæmdastjóra sálfélagslegrar meðferðar.
„Það hefur verið frábært að vinna með nemendum frá Háskóla Íslands sem hafa áhuga á þessum málaflokki,“ segir Ingunn. „Það skiptir okkur miklu máli að rannsaka stöðu skjólstæðinga okkar og skoða þróunina yfir tíma. Niðurstöður verkefnanna gefa okkur mikilvæga innsýn sem nýtist bæði í starfi SÁÁ og samfélaginu öllu.“
Folda Guðlaugsdóttir útskrifaðist með BS-gráðu í sálfræði og vann bakkalárverkefni sitt undir leiðsögn Daníels Þórs Ólasonar og Ingunnar Hansdóttur. Verkefnið ber heitið Spilavandi meðal skjólstæðinga SÁÁ: Algengi, alvarleiki og breytingar yfir tíma.
Folda segir verkefnið hafa verið bæði lærdómsríkt og áhugavert.
„Það sem mér fannst áhugaverðast var að skoða þróunina í gegnum árin. Það sem sérstaklega vakti athygli mína var aukning í tengslum við netspilun og það var mjög áhugavert að geta rýnt í gögnin og skoðað hvernig staðan hefur þróast.“
Birta Dís Lárusdóttir útskrifaðist með meistaragráðu í klínískri sálfræði. Hún varði meistararitgerð sína undir handleiðslu Ingunnar Hansdóttur og Tómasar Kristjánssonar. Ritgerðin ber heitið Prevalence and Course of Suicidal Behavior in Inpatient Detoxification Treatment at Vogur Hospital og fjallar um tíðni og þróun sjálfsvígshegðunar hjá einstaklingum í inniliggjandi fráhvarfsmeðferð á Sjúkrahúsinu Vogi.
„Mér fannst mjög áhugavert að skoða þetta viðfangsefni. Sjálfsvígshugsanir eru algengar hjá fólki sem kemur í meðferð, en það sem kom mér sérstaklega á óvart var að sjá þær jákvæðu breytingar sem verða hjá fólki eftir meðferðina. Það undirstrikar mikilvægi þessarar þjónustu,“ segir Birta.
Báðar útskrifuðust þær frá Háskóla Íslands um síðustu helgi. Framundan hjá Foldu er meistaranám í klínískri sálfræði við Háskóla Íslands en Birta hefur störf sem sálfræðingur á Vík hjá SÁÁ.
SÁÁ óskar Foldu Guðlaugsdóttur og Birtu Dís Lárusdóttur innilega til hamingju með áfangann og velfarnaðar í áframhaldandi námi, störfum og rannsóknum.

Ingunn ásamt Foldu fyrir utan Háskóla Íslands

Ingunn ásamt Birtu Dís fyrir utan Háskóla Íslands