Fara í efni
12. júní 2026

SÁÁ meðal aðila sem afhentu heilbrigðisráðherra lýðheilsuhvatningu

SÁÁ er meðal þeirra 17 félaga heilbrigðisstétta og forvarnarsamtaka sem standa að sameiginlegri lýðheilsuhvatningu til stjórnvalda sem afhent var Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra þann 10. júní.

Í hvatningunni eru alþingismenn og ráðherrar hvattir til að standa með samþykktri lýðheilsustefnu til ársins 2030 og markmiðum gildandi laga um einkasölu áfengis. Að baki hvatningunni stendur breiðfylking félaga heilbrigðisstétta og forvarnarsamtaka sem leggja áherslu á mikilvægi gagnreyndra lýðheilsuaðgerða til að draga úr skaðlegum áhrifum áfengis á einstaklinga, fjölskyldur og samfélagið í heild.

Tilefni hvatningarinnar er meðal annars að ríkisstjórnin hefur í samskiptum við Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) komið því á framfæri að það viðskiptamódel netsölu áfengis sem deilt hefur verið um hér á landi sé ólöglegt. Jafnframt er bent á að nú séu liðin sex ár frá því að ÁTVR kærði slíka netsölu og að mikilvægt sé að mál sem varða lýðheilsu- og samfélagshagsmuni fái skjóta og skýra niðurstöðu.

Í yfirlýsingunni er einnig fagnað því að í drögum að stefnu í áfengis- og vímuvarnarmálum til ársins 2035 sé horft til áherslna Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (WHO) um gagnreyndar forvarnir. Þar er meðal annars bent á að áframhaldandi einkasala ríkisins á áfengi sé mikilvæg lýðheilsuaðgerð til að draga úr skaðlegri notkun áfengis og afleiðingum hennar.

Að hvatningunni standa auk SÁÁ fjölmörg félög heilbrigðisstétta og forvarnarsamtaka, þar á meðal félög hjúkrunarfræðinga, lækna, sálfræðinga, sjúkraliða, félagsráðgjafa og annarra fagstétta sem starfa að heilbrigðis- og forvarnamálum.

Að hvatningunni standa:

  • Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga
  • Félag lýðheilsufræðinga
  • Ljósmæðrafélag Íslands
  • Læknafélag Íslands
  • Sálfræðingafélag Íslands
  • Sjúkraliðafélag Íslands
  • Félagsráðgjafafélag Íslands
  • Lyfjafræðingafélag Íslands
  • Iðjuþjálfafélag Íslands
  • Þroskaþjálfafélag Íslands
  • Félag sjúkraþjálfara
  • Félag áfengis- og vímuefnaráðgjafa
  • SÁÁ
  • Fræðsla og forvarnir-félag áhugafólks um forvarnir og heilsueflingu
  • Foreldrasamtök gegn áfengisauglýsingum
  • IOGT á Íslandi
  • SAFF-Samstarf félagasamtaka í forvörnum

SÁÁ telur mikilvægt að ákvarðanir sem varða aðgengi að áfengi taki mið af lýðheilsusjónarmiðum og bestu fáanlegu þekkingu um áhrif áfengis á einstaklinga, fjölskyldur og samfélagið í heild.