Fara í efni
14. apríl 2026

SÁÁ og Landspítalinn undirrita samning um sérnám lækna

SÁÁ og Landspítali undirrituðu nýverið samning um samstarf sem felur í sér svokallaða „rotation“ sérnámslækna, þar sem læknar í sérnámi fá tækifæri til að starfa hjá SÁÁ sem hluta af námi sínu.

Samningurinn markar mikilvægt framfaraskref í eflingu samstarfs milli stofnananna og stuðlar að aukinni þekkingu og reynslu lækna á sviði fíknlækninga og meðferðar við fíknsjúkdómum.

Með þessu fyrirkomulagi fá sérnámslæknar dýrmæta innsýn í starfsemi SÁÁ og meðferðarúrræði samtakanna, sem styrkir faglega þróun þeirra og eykur skilning á mikilvægi heildrænnar nálgunar í meðferð.

Við undirritun samningsins voru viðstaddir:

  • Margrét Dís Óskarsdóttir, yfirlæknir sérnáms hjá Landspítala
  • Tómas Þór Ágústsson, framkvæmdastjóri lækninga hjá Landspítala
  • Valgerður Rúnarsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ
  • Ragnheiður Hulda Friðriksdóttir, forstjóri SÁÁ

Samstarfið er liður í áframhaldandi þróun á heilbrigðisþjónustu og menntun heilbrigðisstétta á Íslandi, með það að markmiði að bæta þjónustu við einstaklinga sem glíma við fíknsjúkdóma.

Lesa tilkynningu frá Landspítalanum hér

Tómas Þór Ágústsson, framkvæmdastjóri lækninga hjá Landspítala og Valgerður Rúnarsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ.

Tómas Þór Ágústsson, framkvæmdastjóri lækninga hjá Landspítala, Valgerður Rúnarsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ og Margrét Dís Óskarsdóttir, yfirlæknir sérnáms hjá Landspítala.