SÁÁ og SÍ ná sameiginlegri niðurstöðu
Sjúkratryggingar og SÁÁ hafa náð saman um að endurskoða núgildandi samning aðila með það að markmiði að styrkja stjórnarhætti og skapa skýrari umgjörð um heilbrigðisþjónustu SÁÁ.
Aðilar telja breytingarnar mikilvægt skref til að efla traust á starfseminni og skapa traustan grundvöll fyrir áframhaldandi þjónustu við þann stóra hóp fólks sem á henni þarf að halda.
Þetta er mikilvægt skref til að endurvekja traust og skapa grundvöll fyrir því að starfsemi SÁÁ komist í betra og stöðugra horf. Það skiptir fyrst og fremst máli fyrir fólkið sem treystir á þessa mikilvægu þjónustu. Við viljum nú horfa fram á veginn og leggja okkar af mörkum til að skapa þann stöðugleika sem þarf svo starfsfólk geti einbeitt sér að því sem mestu máli skiptir – að veita góða heilbrigðisþjónustu,“ segir Sigurður H. Helgason, forstjóri Sjúkratrygginga.
„Það er gott að vera komin með sameiginlegu niðurstöðu með Sjúkratryggingum. Við viljum skýra ábyrgð og verkaskiptingu. Um leið skiptir okkur miklu að þjónustan verði áfram veitt í nafni SÁÁ og byggi á þeirri hugmyndafræði sem starfið hvílir á. Með þetta að leiðarljósi viljum við efla traust á starfseminni og skapa nýjum forstjóra og starfsfólki góðar aðstæður til að sinna sjúklingum,“ segir Anna Hildur Guðmundsdóttir, formaður SÁÁ.