Samstarf SÁÁ og Póstsins um póstkort í Edrúar febrúar
Í samstarfi við Póstinn fór SÁÁ af stað með samfélagslegt verkefni í tilefni af Edrúar febrúar, þar sem póstkortið var endurvakið sem miðill fyrir tengsl, nærveru og jákvæð skilaboð. Verkefnið fólst í því að fá 3–4 listamenn til að skapa póstkort sem dreifa boðskap Edrúar febrúar og tengja saman list, samfélag og bata.
Markmið verkefnisins er margþætt. Með póstkortunum viljum við hvetja fólk til að gefa sér tíma, skrifa falleg orð og efla tengsl sín á milli – edrú. Verkefnið leggur áherslu á gæðastundir og raunveruleg samskipti, án þess að snúast um neyslu og býður fólki að taka þátt á einfaldan og aðgengilegan hátt.
Póstkortunum er dreift víða í samfélaginu, meðal annars á kaffihúsum, í sundlaugum, bókasöfnum, völdum verslunum 66°Norður og hjá Póstinum. Hugmyndin er að fólk grípi með sér kort á förnum vegi, taki sér stund til að skrifa hlý orð til vinar eða fjölskyldumeðlims og sendi áfram góðan boðskap eða jafnvel hengi upp póstkortið, þar sem um falleg listaverk er að ræða.
Í samstarfi við Póstinn er ekkert burðargjald á kortunum – það kostar ekkert að senda þau og þau kosta ekki neitt. Þannig er einfalt að taka þátt, dreifa boðskapnum og láta gott af sér leiða. Verkefnið er áminning um að smá athöfn getur haft mikil áhrif og að tengsl, nærvera og umhyggja eru dýrmæt – sérstaklega þegar þau eru edrú.
Við færum listamönnunum sem tóku þátt í verkefninu innilegar þakkir fyrir að gefa vinnu sína í þágu þessa samfélagslega verkefnis og leggja þannig sitt af mörkum til að styðja við boðskap Edrúar febrúar og mikilvægt starf SÁÁ.
Margrét Sól
Margrét Sól (f. 1996) er sjálfmenntuð myndlistarkona, fædd og uppalin í Reykjavík. Hún er með meistaragráðu í Heilbrigðisverkfræði og hefur starfað sem slíkur þar til nýverið þegar hún hætti í þeirri vinnu til að elta drauminn og sinna listinni að fullu starfi.

SKRIPO
Guðjón Viðarsson Scheving og Kári Þór Arnarsson eru æskuvinir og listamenn sem hafa átt sköpunina sameiginlega frá barnsaldri. Þeir kynntust á leikskólaárunum í Hæðarbóli í Garðabæ og allt síðan hefur teikning, málun og leikgleði verið órjúfanlegur hluti af vináttunni. Undir nafninu Skripo skapa þeir saman á innsæisríkan og frjálsan hátt, þar sem samtal þeirra birtist beint á striganum. Þeir vinna oft á tvo striga í einu og skiptast á að bæta við fígúrur, form og smáatriði, án þess að ákveða fyrirfram hvernig verkið endar. Stundum byrjar annar á auga eða handlegg og hinn tekur við, sem skapar óvæntar tengingar og lifandi karaktera. Verk þeirra bera með sér hlýju, húmor og traust sem hefur mótast í gegnum langa vináttu – list sem sprettur úr samveru, forvitni og gleðinni við að skapa saman.

Pétur Geir Magnússon (f. 1994, Reykjavík) er myndlistarmaður sem starfar á mörkum listar, hönnunar og handverks. Hann lauk BFA-gráðu í grafískri hönnun frá Listaháskóla Íslands árið 2020 og stundaði skiptinám við Gerrit Rietveld Academie í Amsterdam. Pétur hefur tekið þátt í samsýningum víða erlendis, meðal annars í Amsterdam, Mílanó og Brussel, og haldið fjórar einkasýningar á Íslandi og erlendis. Þar má nefna sýningarnar Lágmyndir – endurkoma (2021), Annarskonar Annaspann (2022) og Scener från ett landskap / Scenes from a landscape (2023) í samstarfi við Galleri Bellman í Stokkhólmi, auk sýningarinnar Samfellur í Ásmundarsal í Reykjavík.
Í verkum sínum kannar Pétur tengsl málverks og höggmynda, listar og hönnunar, þar sem áhersla er lögð á lágmyndir og möguleika þeirra í samtímalist. Hann vinnur markvisst með ljós, skugga, form og lit til að skapa dýpt, hreyfingu og nýja vídd í verkunum. Pétur nýtir fjölbreytt efni á borð við við, steypu og plast og sameinar hefðbundið handverk við nútímatækni, meðal annars með leysiskurði, CNC-vélum og þrívíddarprentun. Verk hans einkennast af nákvæmni, tilraunagleði og áhuga á því hvernig ólík miðla og aðferðir geta mættst í einni heild.
