Fara í efni
28. janúar 2026

Samstarfsverkefni SÁÁ x 66°Norður

Í tilefni af Edrúar bjóða 66°Norður og SÁÁ til veislu í verslun 66°Norður á Hafnartorgi fimmtudaginn 29. janúar frá kl. 18:30–20:30. Á viðburðinum hefst sala á Edrú-bolnum, en allur ágóði af sölu hans rennur til styrktar SÁÁ.
Glaðningur fylgir með fyrstu 30 bolum sem keyptir eru.

Boðið verður upp á tónlist og fljótandi veigar frá Töst og eru allir hvattir til að kíkja við, njóta stemningarinnar og sýna málefninu stuðning. Samhliða verður póstkortum dreift sem unnin eru í samstarfi við fjóra listamenn: Margréti Sól, Pétur Geir og strákana í SKRIPO. Verkefnið var hugsað til að dreifa boðskapnum og tengja saman list, samfélag og bata.


Edrúar er vitundarvakningarverkefni sem varpar ljósi á líf án áfengis og þann skýrleika og nærveru sem því getur fylgt. Verkefnið sýnir að edrú lífsstíll snýst ekki um að missa af neinu, heldur um að upplifa meira – að vera til staðar í eigin lífi og hversdagslegum augnablikum.

Edrú-bolurinn var skapaður í samstarfi við 66°Norður til styrktar SÁÁ. Upphaflega hugmyndin er eftir fatahönnuðinn Rúbínu Singh, sem sótti innblástur í slagorð SÁÁ, „Allt annað líf“, og þá merkingu sem setningin hefur fyrir hana sjálfa og fólkið í kringum hana. Í ferlinu varð henni ljóst hversu samtengd velferð okkar allra er, þegar okkur líður vel, sendum við frá okkur jákvæða strauma sem smitast áfram.

Hönnunin var síðan þróuð áfram í samstarfi við Aron Már, einnig þekktan sem Midnight Mar, þar sem boðskapur og fagurfræði mætast í einni flík. Útkoman er einföld og skýr áminning um að edrú líf er ekki skortur, heldur einmitt þetta: allt annað líf.

Að verkefninu kom einnig ljósmyndarinn Saga Sig, Saga Sig er íslensk listakona, ljósmyndari og leikstjóri sem hefur starfað með alþjóðlegum ásýndum vörumerkja og tímarita. Hún hóf að taka myndir átta ára gömul þegar hún bjó á Þingvöllum og varð fyrst dolfallin fyrir fegurð náttúrunnar sem hún vildi varðveita með ljósmyndun að eilífu.  Saga lauk námi í ljósmyndun í London og starfaði þar í mörg ár áður en hún settist að í Reykjavík, þar sem hún vinnur nú sem ljósmyndari, leikstjóri og kennari í ljósmyndun. Verk hennar hafa verið birt um allan heim, meðal annars fyrir Apple, Nike, Topshop, Vogue Japan og fleiri, og hún hefur unnið með tónlistarfólki á borð við Björk, M.I.A. og Patrick Wolf. 

Með myndum sínum og sjónrænu innsæi bætti Saga dýpt og fagurfræðilegri vídd við Edrúar-verkefnið. Hún fangar andrúmsloft og augnablik sem endurspegla það sem Edrúar stendur fyrir: nærveru, litríkar tilfinningar og lífskraft sem styður við bata og persónulegan vöxt.

Í myndaþáttinn voru valdar fyrirmyndir úr samfélaginu til að taka þátt. Fólk með ólíkan bakgrunn sem speglar fjölbreytileika edrú lífs og sýnir að það er ekki ein leið, heldur margar. Með því að beina sjónum að raunverulegu fólki úr samfélaginu var lögð áhersla á tengsl, nærveru og lífið eins og það er.

Edrúar er ekki bara mánuður eða viðburður, heldur samtal. Samtal um val, bata, samfélag og von – og að edrú líf getur verið allt annað líf.

Kærar þakkir til þeirra sem tóku þátt í þessu verkefni:

  • Brynjar Úlfur Morthens
  • Embla Óðinsdóttir
  • Gauti Þeyr Másson
  • Jóhann Alfreð Kristinsson
  • Jón Ragnar Jónsson
  • Patrekur Jaime
  • Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir
  • Sandra Nótt Gunnarsdóttir
  • Steinunn Ósk Valsdóttir
  • Sylvía Briem Friðjónsdóttir

Myndir: Saga Sigurðardóttir

Smink: Elín Stefánsdóttir