Stefnumótun - Vinnustofa
Þátttakendur – notendur þjónustunnar – vinnustofur 2. og 3. júní klukkan 18:00-20:00
Í gangi er vinna um stefnu og framtíðarsýn SÁÁ og liður í þeirri vinnu er að halda vinnustofur þar sem hagaðilar koma saman til að ræða og móta framtíðarsýn og áherslur samtakanna.
Nú er komið að vinnustofum með þeim sem nota þjónustu SÁÁ.
Við höfum fengið til liðs við okkur utanaðkomandi ráðgjafa, Sigríði Ólafsdóttur (Siggu) hjá Mögnum, sem mun stýra og halda utan um ferlið með okkur. Nánari upplýsingar um Mögnum má finna á www.mognum.is.
Við munum hafa 2 vinnustofur með notendum
- Þeir sem hafa nýtt þjónustuna í 1-2 ár
- Þeir sem hafa nýtt þjónustuna í 3 ár og lengur
Skráning fer fram hér:
Vinnustofur - notendur v/stefnumótun - SÁÁ - Google Forms
Sigga mun halda utan um skráninguna og það verða 25 manns inn á hvora vinnustofuna.
Frestur til skráningar er til og með 27.maí 2026.
Haft verður samband við alla sem skrá sig þegar nær dregur með nánari upplýsingum
Frekari upplýsingar í síma 530-7600
Tilgangur SÁÁ samkvæmt samþykktum samtakanna:
SÁÁ eru félagasamtök sem hafa það að markmiði að tryggja fólki með fíknsjúkdóma og aðstandendum þeirra aðgang að bestu fáanlegu meðferð, ráðgjöf og endurhæfingu. Samtökin vinna að forvörnum, fræðslu og bættri þjónustu í þágu einstaklinga sem glíma við áfengis- og vímuefnavanda og stuðla að aukinni vitund samfélagsins um mikilvægi bata og stuðnings.