Fara í efni
25. maí 2025

Þórdís Rögn valin gullheili ISAM

Þórdís Rögn Jónsdóttir, sem með öðrum stendur að Bataappinu, var í dag valin "Gullheili" ISAM. Þórdís kynnti appið fyrir hönd Rekovy, á svokölluðum Innovation day ISAM hér í Hamborg á árlegri ráðstefnu ISAM. Bataappið er þróað m.a. í samvinnu með SÁÁ.
Ásamt Þórdísi eru á ráðstefnunni þær Valgerður Rúnarsdóttir, Helga Katrín Guðmundsdóttir og Erna Gunnþórsdóttir læknar hjá SÁÁ og Hörður J Oddfríðarson ráðgjafi og verkefnisstjóri.