Tilkynning um fyrirkomulag komugjalda í göngudeildum SÁÁ
Samkvæmt reglugerð nr.1495/2025 um greiðsluþáttöku sjúkratryggðra og gjaldskrá sem tók gildi um leið og heildarsamningur SÁÁ við Sjúkratryggingar Íslands tók gildi þann 1. febrúar 2026, ber skjólstæðingum almennt að greiða komugjald fyrir hverja komu á göngudeild, þar til greiðsluþaki er náð skv. eftirfarandi gjaldskrá:
- Sjúkratryggðir almennt, 5.092 kr
- Aldraðir og öryrkjar, 3.303 kr
- Börn greiða ekkert gjald.
Einungis er greitt komugjald hjá SÁÁ einu sinni á dag, þrátt fyrir að sjúkratryggður nýti sér mismunandi þjónustu SÁÁ innan dagsins
Greiðslur falla undir reglugerð um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra.
Hámarksgreiðsla í almanaksmánuði er 37.794 kr. fyrir fullorðna.
Fyrir aldraða, öryrkja er hámarksgreiðsla 25.198 kr. á mánuði.
Sérstök aðlögun frá gildistöku heildarsamnings við Sjúkratryggingar Íslands 1. febrúar 2026:
SÁÁ hefur með hagsmuni skjólstæðinga í lyfjameðferð við ópíóíðafíkn að leiðarljósi, innheimt eitt komugjald á mánuði, óháð fjölda koma í þá sérhæfðu þjónustu. Þetta fyrirkomulag byggir á klínískri reynslu sem sýnir að fyrstu mánuðir lyfjameðferðar við ópíóíðafíkn kalla oft á tíðari og þéttari heimsóknir, sem ella gætu skapað fjárhagslega byrði fyrir þá sem eru að hefja meðferð.
Lyfin sem notuð eru í meðferð við ópíóíðafíkn (LOF), þar á meðal Zubsolv og Buvidal, eru greidd af yfirvöldum og eru skjólstæðingum að kostnaðarlausu.
SÁÁ hefur jafnframt ákveðið að fella niður öll komugjöld fyrir einstaklinga sem eru í virkri göngudeildarmeðferð við spilafíkn.
Skjólstæðingar sem eru skráðir í spilameðferð greiða því ekkert komugjald, óháð fjölda viðtala eða annarrar þjónustu í göngudeild SÁÁ.
Nánari upplýsingar um greiðsluþátttöku sjúkratryggðra í kostnaði vegna heilbrigðisþjónustu má finna á Vef Sjúkratrygginga Íslands.