Fara í efni
25. september 2026

Tímabundnar breytingar á innlögnum á Vog

Vegna tímabundins skorts á læknum hafa forstjóri SÁÁ og framkvæmdastjóri lækninga á Vogi gert breytingar á innlögnum á sjúkrahúsinu Vogi. Í þessari viku hefur ekki verið tekið við nýjum skjólstæðingum á sjúkrahúsinu. Meðferð þeirra sem þegar dvelja á Vogi mun halda áfram með eðlilegum hætti. Áfram verður unnið markvisst að því að fá lækna til starfa svo hægt sé taka við öllum sem þurfa á innlögn að halda.

Í næstu viku er stefnt að innlögnum á mánudag og föstudag. Staðan er metin dag frá degi og um leið og mönnun leyfir verður opnað fyrir innlagnir eins hratt og auðið er.

Einstaklingar sem eiga von á innlögn á næstu tveimur vikum munu fá símtal frá starfsfólki SÁÁ, þar sem farið verður yfir stöðuna og þeim boðinn frekari stuðningur á meðan beðið er.

Ákvörðunin er tekin til að tryggja öryggi sjúklinga og faglega umönnun. Unnið er að því af fullum krafti að leysa mönnunarvandann, meðal annars í samstarfi við heilbrigðisyfirvöld.

„Öryggi sjúklinga er alltaf í fyrsta sæti. Við viljum frekar taka færri inn í skamman tíma en að veita þjónustu sem ekki stenst faglegar kröfur. Við vitum að biðin er afskaplega erfið fyrir þau sem hafa beðið eftir meðferð og aðstandendur þeirra. Þess vegna munum við hafa samband við þau sem nú þegar hafa fengið innlagnardag og reynum eftir fremsta megni að sinna þeim eins vel og mögulegt er,” segir Baldvina Ýr Hafsteinsdóttir, forstjóri SÁÁ.