Tökum vel á móti sölufólki Álfasölunnar
Álfasala SÁÁ hófst formlega 6. maí og stendur til 10. maí. Af því tilefni afhenti Anna Hildur Guðmundsóttir, formaður SÁÁ, Diljá Mist Einarsdóttur alþingiskonu fyrsta álfin í ár og markaði þannig upphaf hinnar árlegu fjáröflunar SÁÁ.
Í ár er Álfasalan tileinkuð ungu fólki og verður ágóði sölunnar nýttur til að efla fræðslu og forvarnir fyrir börn og ungmenni. Meðal annars verður þróað nýtt fræðslu- og forvarnarefni sem ætlað er að hjálpa ungu fólki að takast á við áskoranir tengdar áfengi og öðrum vímuefnum.
„Við viljum með álfasölunni í ár leggja sérstaka áherslu á að styðja ungt fólk með markvissum hætti. Fræðsla og forvarnir skipta sköpum og með þessu átaki viljum við leggja grunn að nýju efni sem getur nýst börnum, ungmennum, fjölskyldum þeirra og samfélaginu öllu,“ segir Anna Hildur, formaður SÁÁ.
"Forvarnir og meðhöndlun fiknsjúkdóma eru besta leiðin til að draga úr vímuefnavandanum og það er gott að geta lagt átakinu lið sem aðstandandi," segir Diljá Mist alþingiskona.
Álfasalan er ein mikilvægasta fjáröflun SÁÁ og hefur verið haldin árlega í yfir fjóra áratugi. Stuðningur almennings skiptir sköpum svo hægt sé að halda áfram öflugu forvarnar- og fræðslustarfi fyrir unga fólkið í landinu.
SÁÁ hvetur landsmenn til að taka vel á móti sölufólki Álfasölunnar dagana 6.–10. maí og leggja þannig mikilvægu málefni lið. Hver seldur álfur skiptir máli og hjálpar til við að styðja við betri framtíð barna og ungmenna um allt land.

Dilja Mist alþingiskona ásamt Önnu Hildi formanni SÁÁ með Álfasólgleraugun.
