Fara í efni
22. maí 2025

Valgerður Rúnarsdóttir heiðruð á aðalfundi SÁÁ

Á aðalfundi SÁÁ, 6. maí 2025 heiðruðu samtökin Valgerði Rúnarsdóttur lækni í tilefni af því að 25 ár voru liðin frá því að hún hóf störf hjá SÁÁ, á sjúkrahúsinu Vogi. Á þessum tíma hefur Valgerður starfað óslitið við fíknlækningar ásamt því að sinna stjórnunarstörfum.

Valgerður er sérfræðingur í lyflækningum og var fyrst íslenskra lækna til að ljúka sérfræðiprófi í fíknlækningum frá Brown University í Bandaríkjunum. Hún hóf störf á sjúkrahúsinu Vogi árið 2000. Um árabil var hún forstjóri og yfirlæknir á Vogi og gegnir nú stöðu framkvæmdastjóra lækninga hjá SÁÁ.

Auk hinna daglegu starfa á Vogi hefur Valgerður alla tíð verið mikilvirkur talsmaður SÁÁ, óþreytandi að upplýsa almenning í gegnum fjölmiðla um stöðu fíknsjúkdómsins og mikilvægi fíknimeðferðar.

Það hefur verið ómetanlegt fyrir SÁÁ að hafa Valgerði í framlínu baráttunnar við fíknsjúkdóminn, njóta þekkingar hennar, visku og óbilandi áhuga á framförum á þessu sviði.