Fara í efni
12. mars 2026

Vinnustaðavakt SÁÁ styður stjórnendur í viðkvæmum málum

SÁÁ hefur sett á laggirnar nýja þjónustu fyrir fyrirtæki og stofnanir sem kallast Vinnustaðavakt SÁÁ. Markmið þjónustunnar er að styðja stjórnendur þegar upp koma mál á vinnustöðum sem tengjast áfengis- eða öðrum fíknivanda og hjálpa þeim að bregðast við af öryggi, fagmennsku og virðingu.

Stjórnendur standa stundum frammi fyrir erfiðum aðstæðum þegar frammistaða, mæting eða hegðun starfsmanns gefur tilefni til áhyggja. Slík mál geta verið viðkvæm og margir eru óöruggir um hvernig best sé að taka samtalið og hvert eigi að leita eftir aðstoð. Með Vinnustaðavaktinni geta stjórnendur leitað til sérfræðinga SÁÁ og fengið ráðgjöf um næstu skref.

Þjónustan felur meðal annars í sér fræðslu, ráðgjöf og stuðning við að móta viðbragðsáætlanir fyrir vinnustaði. Fyrirtæki sem taka þátt fá einnig tengilið hjá SÁÁ og geta fengið kynningar og fræðsluerindi fyrir stjórnendur og starfsfólk um fíknsjúkdóma, áhrif þeirra og þau úrræði sem eru í boði.

Með Vinnustaðavaktinni er leitast við að efla vitund og þekkingu á vinnustöðum og skapa aðstæður þar sem hægt er að grípa fyrr inn í þegar vandi er að þróast. Markmiðið er að styðja fólk í að leita sér hjálpar og stuðla að heilbrigðari vinnustöðum.

Fyrirtæki og stofnanir sem hafa áhuga á að kynna sér Vinnustaðavakt SÁÁ geta haft samband við SÁÁ til að fá nánari upplýsingar um þjónustuna.

Á mbl.is birtist löng og góð umfjöllun um Vinnustaðavakt SÁÁ og samstarf SÁÁ og póstins.

Þú getur pantað frekari kynningu á Vinnustaðavakt SÁÁ með því að smella hér