Fara í efni

Foreldranámskeið

Fyrir foreldra ungmenna með fíknivanda.

Foreldranámskeið er sérstaklega ætlað foreldrum og/eða öðrum aðstandendum ungmenna (15-25 ára) sem eiga í áfengis- og/eða vímuefnavanda, hvort sem þau hafi farið í meðferð hjá SÁÁ eða ekki. Foreldranámskeiðið er byggt á gagnreyndum aðferðum eins og áhugahvetjandi samtali (Motivational Interviewing) og CRAFT (Community Reinforcement and Family Training). Þessar aðferðir hafa reynst vel fyrir fjölskyldur fólks með fíknivanda.

Fyrirkomulag námskeiðsins

Foreldranámskeiðið telur 8 skipti og hver tími samanstendur af fræðslu, umræðum og verkefnavinnu. Allir þátttakendur námskeiðsins fá afhenda handbók með útdráttum af fræðslu hvers tíma, verkefnum og öðrum gagnlegum upplýsingum.

Markmið námskeiðsins

Að auka þekkingu aðstandanda á fíknivanda ungmenna, þróun hans og birtingarmyndum og áhrifum hans á fjölskylduna. Að kenna umönnunaraðilum aðferðir eins og hvernig hægt er að hafa áhrif á áhugahvöt og auka farsæl samskipti til að hvetja ungmenni til breytinga, fjölskyldunni allri til bóta. Að efla og styðja foreldra með því að kenna leiðir til sjálfsræktar.

Heildarverð námskeiðs eru 50.000 kr fyrir einstakling og 75.000 kr fyrir par. Greiða þarf skráningargjald 10.000 kr fyrir einstakling og 15.000 kr fyrir par áður en námskeið hefst.

Innifalið í verði er handbók sem innheldur ítarlegar upplýsingar um allt sem farið er yfir á námskeiðinu.

Skráning fer fram með því að senda tölvupóst á netfangið foreldrar@saa.is með fullu nafni, kennitölu, tölvupóstfangi og símanúmeri hjá þeim er hyggjast taka þátt. Skráning er einnig hjá göngudeild SÁÁ í síma 530-7600.

Eftirfarandi erindi eru hluti af Foreldranámskeiði:

  • Fíknsjúkdómurinn og heilaþroski ungmenna
  • Hegðun ungmenna með fíknivanda og líðan og viðbrögð fjölskyldu
  • Sjálfsrækt
  • Hvað er áhugahvöt og hvernig er hægt að hafa áhrif á áhuga til breytinga
  • Að styrkja æskilega hegðun og draga úr óæskilegri hegðun
  • Farsæl samskipti
  • Að setja mörk
  • Bataferlið

Umsjónarmenn námskeiðs

  • Katrín Ella Jónsdóttir, sálfræðingur.
  • Þóra Björk Ingólfsdóttir sálfræðingur.