Fara í efni
28. október 2025

SÁÁ býður sérhæfða meðferð við spilafíkn – öllum að kostnaðarlausu

Sérfræðingar SÁÁ veita meðferð sem byggir á alþjóðlegri þekkingu og viðurkenndum aðferðum

Í umræðum undanfarinna vikna hefur verið rætt um skort á meðferðarúrræðum og faglegri þekkingu fyrir fólk sem glímir við spilafíkn á Íslandi. SÁÁ vill í því samhengi upplýsa almenning um að samtökin hafa í nokkur ár boðið upp á sérhæfða og gagnreynda meðferð við spilafíkn — öllum að kostnaðarlausu og aðgengilega án tímapöntunar eða biðlista.

Hjá SÁÁ geta einstaklingar sem eiga í vanda vegna spilafíknar fengið:

  1. Ókeypis hópmeðferð í 10 skipti, byggða á hugrænni atferlismeðferð (HAM), sem boðin er reglulega yfir árið.
  2. Ókeypis vikulegan stuðningshóp til að styrkja bata og tengsl við jafningja.
  3. Einstaklingsviðtöl hjá ráðgjafa eða einstaklingshæfða HAM-meðferð við spilafíkn hjá sálfræðingi.
  4. Fagfólk með alþjóðlega menntun, þar á meðal ráðgjafa og sálfræðinga með ICGC-vottun (International Certified Gambling Counselor) sem tryggir gæði og fagmennsku í allri meðferð.

„Það er mikilvægt að almenningur viti að hjálp er til staðar,“ segir Ingunn Hansdóttir, framkvæmdastjóri meðferðarsviðs SÁÁ. „Við höfum séð fjölgun í hópi þeirra sem leita sér aðstoðar vegna spilafíknar, og meðferðarúrræðin okkar hafa reynst vel – bæði í hópmeðferð og einstaklingsmeðferð. Það skiptir máli að fólk fái aðstoð hjá sérhæfðu fagfólki sem vinnur eftir gagnreyndum aðferðum.“

Spilafíkn er alvarlegur vandi sem getur haft djúpstæð áhrif á einstaklinga, fjölskyldur og samfélagið í heild. Meðferðarstarf SÁÁ byggir á þverfaglegri þekkingu, aðgengi og virðingu fyrir skjólstæðingum — sömu grunngildum og hafa verið leiðarljós í meðferð við áfengis- og vímuefnavanda í áratugi.

Allir eru velkomnir að leita sér aðstoðar hjá SÁÁ. Nánari upplýsingar má finna á www.saa.is eða í síma 530 7600.

Nánar um spilameðferð hér


Göngudeildarmeðferð við spilafíkn er vikulegt úrræði alla fimmtudaga frá kl. 16:00 - 18:00 og er engin þörf að skrá sig. Það er engin skulbinding, bara að mæta. Öll velkomin!
Fyrirlestur er kl. 16:00 og stuðningshópur kl.17:00. Það er möguleiki að mæta í hvorutveggja eða annað hvort. Allt eftir hentugleika.