Edrúar í febrúar
Í febrúar hvetur SÁÁ landsmenn til að prófa edrú lífsstíl og gefa sér svigrúm til að upplifa þann skýrleika, nærveru og vellíðan sem getur fylgt því að sleppa neyslu áfengis. Edrúar snýst ekki um að missa af neinu, heldur um að upplifa meira – meiri tengsl, meiri orku og meiri meðvitund í hversdagslífinu.
Í tengslum við Edrúar munu SÁÁ miðla fræðslumolum á samfélagsmiðlum um skaðsemi áfengis og vímuefna. Áherslan er þó fyrst og fremst á að vekja athygli á þeim heilbrigða lífsstíl sem fylgir því að velja edrú líf og skapa jákvætt samtal um heilsu, líðan og nærveru.
Edrúar er samfélagslegt verkefni sem nýtir þann meðbyr sem er í þjóðfélaginu, ekki síst meðal yngra fólks sem í auknum mæli velur að lifa edrú lífi. Verkefnið snýst um að gefa fólki rými til að prófa, upplifa og finna út hvað hentar hverjum og einum – án pressu eða fyrirfram gefinna markmiða.
Í tengslum við Edrúar var Edrú-bolurinn skapaður í samstarfi við 66°Norður og til styrktar SÁÁ. Upphaflega hugmyndin er eftir fatahönnuðinn Rúbína Singh, sem sótti innblástur í slagorð SÁÁ, Allt annað líf, og þá merkingu sem setningin hefur fyrir hana sjálfa og fólkið í kringum hana. Í ferlinu varð henni ljóst hversu samtengd velferð okkar allra er – þegar okkur líður vel, sendum við frá okkur jákvæða strauma sem smita út frá sér. Hönnunin var síðan þróuð áfram í samstarfi við Midnight Mar, þar sem boðskapur og fagurfræði mætast í einni flík. Útkoman er einföld og skýr áminning um að edrú líf er ekki skortur, heldur val – og einmitt þetta: allt annað líf.

Allur ágóði af sölu Edrú-bolsins rennur til styrktar SÁÁ og styður við mikilvægt starf samtakanna. Hægt er að versla bolinn í völdum verslunum 66°Norður á Hafnartorgi og vefverslun þeirra.
Smella hér til að lesa um samstarfið við 66°Norður.
Hluti af fræðslu- og vitundarvakningarstarfi Edrúar er sérstakt póstkortaverkefni sem unnið var í samstarfi SÁÁ og Pósturinn. Í verkefninu var listafólki boðið að túlka boðskap Edrúar og færa hann í form póstkorta sem hvetja til nærveru, ígrundunar og tengsla. Með því að endurvekja póstkortið sem miðil er áhersla lögð á gildi hægari samskipta, persónulegra skilaboða og þess að gefa sér tíma til að skrifa og senda falleg orð. Póstkortin eru dreifð víða í samfélaginu og eru hugsuð sem aðgengileg og jákvæð forvörn sem minnir á að edrú lífsstíll getur styrkt bæði einstaklinginn og tengsl hans við aðra.
Samantekt af póstkortunum:

Smelltu hér til að lesa um samstarfið við Póstinn og listamennina.
Edrúar er fyrir alla – hvort sem fólk velur að vera edrú allan febrúar, hluta hans eða einfaldlega taka þátt í samtalinu og upplifuninni.